Hreiðar Már Hermannsson hefur verið ráðinn nýr forstjóri Eikar fasteignafélags, en stjórn félagsins ákvað þetta á fundi sínum í dag. Hreiðar Már tekur við starfinu í framhaldi af aðalfundi félagsins þann 10. apríl næstkomandi af Garðari Hannesi Friðjónssyni sem leitt hefur félagið og byggt upp undanfarin 22 ár.
Hreiðar Már er með B.A. gráðu í fjármálum frá London South Bank University Business School og M.Sc. gráðu í fjármálum, fjárfestingum og bankastarfsemi frá sama skóla.
Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að Hreiðar Már hafi víðtæka reynslu af fjárfestinga- og fjármálastarfsemi. Hann kemur til Eikar frá Arion banka þar sem hann gegndi stöðu forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar á fyrirtækja og fjárfestingabankasviði. Áður hafði Hreiðar Már starfað við útlánastarfsemi til fyrirtækja, eignastýringu og ráðgjöf í 20 ár.
„Við erum afar ánægð með að fá Hreiðar Má til liðs við okkar öfluga félag og hlökkum til samstarfsins. Við teljum að reynsla hans og framtíðarsýn muni styrkja stöðu félagsins á markaði og styðja við áframhaldandi arðbæran vöxt og þróun þess. Framundan eru fjölmörg tækifæri,“ er haft eftir Bjarna K. Þorvarðssyni, stjórnarformanni Eikar í tilkynningunni.
„Eik er spennandi fyrirtæki, sem starfar á markaði sem mun vaxa og taka breytingum á komandi misserum. Efnahagur félagsins er fyrna sterkur auk þess sem það atvinnuhúsnæði og þeir þróunarmöguleikar sem eru nú þegar á efnahagsreikningnum eru mjög áhugaverðir. Samfélagið okkar er að breytast, þarfir atvinnulífsins eru að breytast og Eik fasteignafélag er í kjör aðstöðu til að láta þar að sér kveða. Ég þakka stjórn Eikar traustið og hlakka til að vinna með starfsmönnum og viðskiptavinum að tækifærum sem blasa við félaginu,“ er haft eftir Hreiðari Má í tilkynningunni.