Icelandair fjárfestir í nýjum innviðum upplýsingatækni

Fulltrúar IDS á Íslandi og Icelandair í höfuðstöðvum flugfélagsins í …
Fulltrúar IDS á Íslandi og Icelandair í höfuðstöðvum flugfélagsins í Hafnarfirði. Frá vinstri til hægri eru Guðbrandur Sigurðsson IDS, Davíð Þór Kristjánsson IDS, Guðmundur Kristinn Ögmundsson Manager Infrastructure & DevOps hjá Icelandair og Steindór Arnar Jónsson frá IDS. Ljósmynd/Hari

Icelandair hefur samkvæmt fréttatilkynningu samið við IDS á Íslandi um kaup og innleiðingu á Nutanix, sem er nýtt upplýsingatækniumhverfi og innviðir sem byggja á hugbúnaði, skýjalausnum og netþjónum með háhraða diskum frá bandaríska fyrirtækinu Hewlett-Packard Enterprise.

Mikilvægt skref

Elísabet Halldórsdóttir, stjórnandi stafræns rekstrar hjá Icelandair, segir í tilkynningunni að kaupin séu mikilvægt skref í þeirri vegferð að einfalda, efla og styrkja upplýsingatækni hjá Icelandair. „Starfsemi flugfélaga treystir á afköst og skilvirkni í upplýsingatæknikerfum og með Nutanix getur Icelandair veitt hraðari og öruggari þjónustu. Nutanix er leiðandi fyrirtæki á heimsvísu í hugbúnaði fyrir skýjalausnir og þessi nýi búnaður gerir okkur kleift að einfalda verulega rekstrarumhverfið og viðhald þess, auka afköst og stytta svartíma í okkar kerfum,“ segir Elísabet.

Ungt fyrirtæki

Davíð Þór Kristjánsson sölustjóri IDS á Íslandi segir í tilkynningunni að fyrirtækið sé ungt og í eigu sænska upplýsingatæknifyrirtækisins Hexatronic. „Það var stofnað haustið 2024 eftir kaup Hexatronic á stórum hluta af rekstri Endor út úr Sýn. IDS á Íslandi veitir, líkt og Endor áður, heildarlausnir í hugbúnaði og vélbúnaði fyrir gagnaver og hýsingarsali fyrirtækja, allt frá hönnun til uppsetningar,” segir Davíð.

Fimm starfa hjá IDS og áætluð ársvelta á þessu ári er 1,5 milljarður króna. ,,Okkar helsti bakhjarl og samstarfsaðili er IDS í Bretlandi, sem er dótturfyrirtæki Hexatronic eins og við. Þar starfa um 200 manns og þangað sækjum við bakhjarla í svona stórar uppsetningar,” bætir Davíð Þór við að lokum í tilkynningunni.



mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK