Stórauknar kröfur um regluverk og eftirlitsumhverfi þrýsta á sameiningu

Möguleg sameining Sparisjóðs Höfðhverfinga hf. og Sparisjóðs Strandamanna hf.
Möguleg sameining Sparisjóðs Höfðhverfinga hf. og Sparisjóðs Strandamanna hf. Jim Smart

Stjórnir Sparisjóðs Höfðhverfinga hf. og Sparisjóðs Strandamanna hf. hafa samþykkt að hefja formlegar viðræður um mögulega sameiningu sjóðanna. 

Kemur þetta fram í tilkynningu frá sjóðunum.

Stærstu eigendur Sparisjóðs Höfðhverfinga eru KEA og Sænes (Grýtubakkahreppur) en eignarhald Sparisjóðs Strandamanna er dreift á fjölda einstaklinga.  

Haft er eftir Jóhanni Ingólfssyni, formanni stjórnar Sparisjóðs Höfðhverfinga:

 „Mikilvægt er að stækka og efla sparisjóðina til þess að mæta sterkar inn á bankamarkaðinn og viðhalda eðlilegri flóru fyrirtækja á þessum markaði. Við teljum góðan hljómgrunn í samfélaginu fyrir vexti sparisjóðanna, það sýna viðhorfskannanir sem við höfum látið gera. Vonandi verði þetta upphafið að frekari sameiningum eða stækkunum sparisjóðanna í heild sinni því þeir munu verða til framtíðar áhugaverður og öðruvísi valkostur fyrir fólk og fyrirtæki á bankamarkaði.“

 Í sömu tilkynningu er haft eftir Víði Álfgeiri Sigurðarssyni, formanni stjórnar Sparisjóðs Strandamanna:

 „Tækifæri eru í sameiningu sjóðanna, nauðsynlegt er að þróa áfram og auka samstarfs sparisjóðanna með hagsmuni eigenda og samfélagsins sem þeir vaxa uppúr að leiðarljósi. Stórauknar kröfur um regluverk og eftirlitsumhverfi, þrátt fyrir smæð og einfaldan rekstur sjóðanna, er að gera rekstrarumhverfi þeirra flóknara. Áfram verður unnið að auknu samstarfi sparisjóða í gegnum Samband Íslenskra Sparisjóða. Vonir standa til að með sameiningu verði til öflugur sparisjóður með dreifðu eignarhaldi, sem styðji vel við nærsamfélagið og byggir áfram á þeirri hugmyndafræði sem sparisjóðirnar hafa alltaf staðið fyrir frá því þeir voru stofnaðir fyrir rúmlega 130 árum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK