Meðaltal leigu 263 þúsund krónur

Í mánaðarskýrslu HMS kemur að á höfuðborgarsvæðinu hafi verið dýrast …
Í mánaðarskýrslu HMS kemur að á höfuðborgarsvæðinu hafi verið dýrast að leigja á Seltjarnarnesi. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Meðaltal markaðsleigu í nýskráðum samningum í febrúar var 263 þúsund krónur og er óbreytt frá fyrri mánuði. Kemur þetta fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS).

Í skýrslu HMS kemur fram að á höfuðborgarsvæðinu hafi verið dýrast að leigja á Seltjarnarnesi, þar sem meðalleiga var um 338 þúsund krónur, en ódýrast í Reykjavíkurborg, þar sem meðalverð var 274 þúsund krónur.

Sé hins vegar litið til leiguverðs á hvern fermetra er þessu öfugt farið þar sem meðal fermetraverð var hæst í Reykjavíkurborg en lægst á Seltjarnarnesi. Skýringin liggur í því að alla jafna eru stærri íbúðir leigðar út á Seltjarnarnesi samanborið við í Reykjavík.

Í nágrenni höfuðborgarsvæðisins var markaðsleiga hæst í Suðurnesjabæ, um 269 þúsund krónur, en lægst í Reykjanesbæ, um 245 þúsund krónur.
mj@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK