Lífeyrissjóðir hefja sameiningarviðræður

Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins.
Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins. Ljósmynd/almenni.is

Stjórnir Almenna lífeyrissjóðsins og Lífsverks lífeyrissjóðs hafa undirritað viljayfirlýsingu um að hefja formlegar viðræður um mögulega sameiningu sjóðanna.

Kemur þetta fram í tilkynningu frá sjóðunum. Þar er tilgreint að markmiðið sé að kanna hvort sameining bæti hag sjóðfélaga og geti styrkt starfsemi sjóðanna til framtíðar.

Verði af sameiningunni yrði sameinaður sjóður fimmti stærsti lífeyrissjóður landsins með heildareignir upp á 667 milljarða miðað við stöðu eigna um síðustu áramót.

Bent er á að viðræður séu á frumstigi en stefnt að því að þeim verði lokið fyrir sumarið.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka