Rafmyntageirinn, efnahagsstefna Donalds Trumps og skuldasöfnun ríkja er til umræðu í viðskiptahluta Dagmála þessa vikuna. Gestur þáttarins er Daði Kristjánsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Visku Digital Assets.
Talið barst að efnahagsstefnu Trumps sem felur meðal annars í sér viðleitni til að bæta skuldastöðu Bandaríkjanna.
„Kerfið sem við búum við er með þannig hvata að ég á erfitt með að sjá stjórnmálamenn taka mjög erfiðar ákvarðanir til lengri tíma af því að það er bara orðin svo mikil skuldasöfnun. Það er mjög erfitt að keyra kerfið niður,“ segir Daði og bætir við að ef horft sé á Bandaríkin hafi þau skuldað minna en 10 trilljón dollara við fjármálahrunið 2008.
„Skuldirnar eru nú komnar yfir 36 trilljón dollara. Þær eru næstum búnar að fjórfaldast. Og sem hlutfall af landsframleiðslu eru þær búnar að meira en tvöfaldast, fara úr 60% af landsframleiðslu í um 120% af landsframleiðslu. Þannig að þetta er gríðarlega ósjálfbær vegferð,“ segir Daði og bætir við að mikilvægt sé að snúa þessu við.
„Það sem mun þurfa er alveg gríðarlega öguð ríkisfjármál til lengri tíma og það er mjög sársaukafullt og verður mjög þungt fyrir markaði.“