Þungt högg fyrir landsbyggðina

Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims.
Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims. mbl.is/María Matthíasdóttir

Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims segir í samtali við Morgunblaðið að það hafi ekki átt sér stað nægilega mikil greiningarvinna um afleiðingar af hækkun veiðigjalda.

Ríkisstjórnin kynnti á þriðjudag hugmyndir um tvöföldun auðlindagjalds í sjávarútvegi.

„Mér finnst þetta óskynsamleg ákvörðun hjá ríkisstjórninni. Það vantar samtal við greinina og greiningu á því hvaða afleiðingar þetta hefur fyrir fyrirtæki, sveitarfélög og landsbyggðina,“ segir Guðmundur.

Hann bætir við að það að hækka gjöldin veiti þjóðinni ekki meira fjármagn.

„Ríkissjóður er ekki það sama og þjóðin og ráðherrarnir hugsa ekki út í að skattstofninn geti minnkað. Þessi áform veikja bæði atvinnulífið og landsbyggðina,“ segir Guðmundur og bendir á að um 80% af sjávarútveginum sé á landsbyggðinni.

Spurður hvort Brim hafi ákveðið að bregðast við þessari þungu skattlagningu með einhverjum hætti segir Guðmundur að það sé fullsnemmt að svara því.

„Þetta er það þungt högg fyrir landsbyggðina að ég á eftir að sjá alla landsbyggðarþingmennina samþykkja þetta frumvarp. Þetta eru mjög óskynsamar tillögur. Ég vil líka benda á að svona skattlagning þekkist hvergi annars staðar hvorki í Evrópusambandinu né í Noregi,“ segir Guðmundur að lokum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK