Play Europe, sem er dótturfélag Fly Play hf., hefur fengið afhent flugrekstrarleyfi (AOC) frá flugmálayfirvöldum á Möltu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Play þar sem segir jafnframt að leyfið hafi verið afhent við hátíðlega athöfn á Möltu í morgun.
Þá segir í tilkynningunni að Play Europe hafi verið stofnað sem liður í endurskipulagningu Fly Play hf. sem kynnt var í október.
„Þá tilkynnti félagið að það myndi sinna verkefnum í Evrópu fyrir aðra flugrekendur í gegnum dótturfélag sitt Play Europe á Möltu og á sama tíma myndi Fly Play hf. (íslenska félagið) leggja ríkari áherslu á bein flug (e. point-to-point) til sólarlandaáfangastaða frá Íslandi sem hingað til hafa skilað félaginu góðri arðsemi.
Fly Play hf. er með tíu þotur í flota sínum. Play hefur þegar náð samkomulagi við flugrekanda í Austur-Evrópu og liður í því samkomulagi er leiga þriggja véla á nýja maltneska flugrekstrarleyfinu. Vélarnar munu einungis sinna flugstarfsemi utan Íslands og ekki undir vörumerkjum Play. Með öðrum orðum verður ekki flogið á þeim til og frá Íslandi heldur frá borgum á meginlandi Evrópu. Flugmenn og yfirflugliðar verða starfsmenn Play Europe og verða ráðnir og staðsettir í því landi sem leigutakinn flýgur frá. Fly Play hf. verður áfram íslenskt lágfargjaldaflugfélag með meirihluta af sínum vélum í rekstri frá Keflavík,“ segir í tilkynningunni.
Enn fremur segir að fyrsta flugvélin sem skráð sé á maltneska flugrekstrarleyfið sé Airbus A321-NEO, framleidd árið 2018, með skráningarnúmerið 9H-PEA.
„Þetta er mikilvægt skref fyrir okkur. Þessi leiguverkefni munu skila Play arðsemi í samræmi við það sem félagið hefur áður gefið til kynna og gerir rekstur félagsins mun fyrirsjáanlegri og stöðugri og afkomu félagsins jákvæða. Viðtaka maltneska flugrekstrarleyfisins í dag, töluvert á undan áætlun, er afrakstur þrotlausrar vinnu sem samstarfsfólk mitt hefur unnið af hendi af einstakri fagmennsku undanfarna mánuði og við erum því afar stolt á þessum tímamótum,” er haft eftir Einari Erni Ólafssyni, forstjóra Play, í tilkynningunni.
Þá er haft eftir Charles Pace, framkvæmdastjóra flugmálasviðs Möltu (Transport Malta – Civil Aviation Directorate), að hann sé ánægður með að Play Europe sé orðið hluti af maltneskri flugmálasögu.
„Á athöfninni þakkaði hann öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum til verkefnisins og fyrir þessa miklu fjárfestingu á Möltu. Hann tók fram að ferlið hafi gengið snurðulaust fyrir sig og þakkaði eftirlitsmönnum frá flugmálasviði Möltu og starfsmönnum Play sem hann sagði hafa unnið af mikilli samviskusemi að því að ná þessum áfanga. Hann hlakkaði til að sjá flugfélagið vaxa og dafna á komandi mánuðum og misserum,“ segir í tilkynningu Play.