Lyfti félaginu á nýtt stig

Josip Budimir framkvæmdastjóri Móbergs og Ármann Þorvaldsson forstjóri Kviku í …
Josip Budimir framkvæmdastjóri Móbergs og Ármann Þorvaldsson forstjóri Kviku í húsakynnum Kviku.

Josip Budimir, framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Móbergs í Zagreb í Króatíu, segir í samtali við Morgunblaðið að Ísland sé góð blanda af Evrópu og Bandaríkjunum. Menningarlega sé landið nær Evrópu, en viðskiptahættirnir líkist þeim bandarísku.

„Á mínum heimaslóðum er viðhorfið í viðskiptalífinu talsvert ólíkt. Þegar við stofnum fyrirtæki í Króatíu einbeitum við okkur að því að ná endum saman, tryggja að tekjur og kostnaður haldist í hendur. Á meðan eru Íslendingar óhræddir við að stofna fyrirtæki, stækka þau hundraðfalt og reyna svo að selja þau eftir nokkur ár,“ segir Budimir og brosir.

Hann hefur ferðast til Íslands fjörutíu sinnum síðan hann hóf fyrst að vinna að fyrir Netgíró að hinni svokölluðu „Kaupa núna, greiða síðar“-lausn á Íslandi.

Þegar Kvika keypti Netgíró í janúar 2021 eignaðist bankinn einnig 40% hlut í Móbergi.

Móberg hefur að mestu starfað á íslenskum markaði og þjónustað mörg af stærstu fyrirtækjum landsins. Í dag koma um 75% af tekjum Móbergs frá Íslandi, á meðan króatíski heimamarkaðurinn stendur undir um 25%. „Við vinnum enn fyrir Netgíró, en einnig fyrir fjölda annarra íslenskra fyrirtækja eins og Heimkaup, YAY, Sýn, Sidekick Health, Aurbjörg og Arnarlax. Auk hugbúnaðarverkefna höfum við nýlega unnið að nokkrum flóknum gagnaverkefnum fyrir viðskiptavini á Íslandi. Við hjálpum þeim að byggja upp þróaðan gagnavettvang sem samanstendur af gagnageymslu í Azure-skýi Microsoft sem og miðlægum gagnagrunni fyrir gögn frá mörgum aðilum, auk fullkomins Power BI-skýrslukerfis. Þetta kerfi gerir viðskiptavinum kleift að taka ákvarðanir byggðar á gögnum, einfalda fjármálaskýrslugerð og sjálfvirknivæða skýrslugerð vegna laga og reglna.“

Budimir bendir á að Móberg hafi almennt haldið sér til hlés til þessa og aðeins nýlega komið á fót sölu- og markaðsdeild. „En orðspor okkar hefur breiðst út og okkur hefur gengið vel. Fólk kann að meta nálgun okkar og vinnubrögð og við höfum djúpa þekkingu á tæknilandslagi íslenska markaðarins.“

Velta 575 milljónum

Spurður út í frekari vöxt, í ljósi þess að velta fyrirtækisins var nærri fjórar milljónir evra á síðasta ári, eða um 575 milljónir íslenskra króna, segist Josip hafa áhuga á frekari stækkun, þó hann vilji fara varlega í sakirnar. „Við viljum verða þekktari á Íslandi og taka að okkur enn fleiri verkefni. Við leitum einkum eftir langtímaviðskiptasamböndum, líkt og við höfum við Netgíró. Einnig sé ég tækifæri fyrir okkur til að hasla okkur völl í Skandinavíu á næstu árum.“

Budimir telur að Króatía og Ísland passi vel saman. „Í Króatíu er sterkt menntakerfi og mikið úrval hæfileikaríkra sérfræðinga. Á sama tíma eru Íslendingar mjög skapandi og hér hafa sprottið upp mörg farsæl innlend fyrirtæki og mörg hafa orðið alþjóðleg félög.“

Hann bendir þó á að helsti vandinn á Íslandi sé skortur á hæfu starfsfólki. Þar komi þjónusta Móbergs sterkt inn. „Við tölum meira að segja dálítla íslensku,“ segir hann og brosir.

Sem gott dæmi um samspil íslenskrar forystu og króatísks mannafla (e. talentpool) nefnir Budimir Dag Sigurðsson, þjálfara króatíska karlalandsliðsins í handbolta. Á innan við einu ári í starfi hafi hann leitt liðið til annars sætis á heimsmeistaramótinu í handbolta fyrr á þessu ári.

Að lokum lýsir Josip þakklæti sínu fyrir að hafa fengið tækifæri til að starfa á Íslandi og kynnast Íslendingum. Fjárfesting Kviku í Móbergi hafi, að hans sögn, lyft fyrirtækinu upp á nýtt stig.

Bankanum til hagsbóta

Ármann Þorvaldsson forstjóri Kviku segir í samtali við Morgunblaðið að fyrirtækið hafi kynnst Bodimir og teymi hans hjá Móbergi þegar Kvika lauk kaupum á Netgíró fyrir nokkrum árum.

„Það varð fljótt ljóst að þetta var frábært fyrirtæki og að sterkari tengsl okkar við það gætu orðið bankanum til hagsbóta. Við keyptum því 40% hlut í Móbergi og færðum ýmis hugbúnaðarverkefni frá bankanum yfir til þeirra. Samstarfið hefur gengið afar vel og starfsmenn Móbergs hafa öðlast ótrúlega þekkingu á íslenskum markaði og innviðum hans. Ég held að það sé óhætt að segja að hvert einasta verkefni sem Josip og teymi hans hafa tekið að sér hafi verið leyst afburðavel, á réttum tíma og með lægri kostnaði en við hefðum sjálf náð. Önnur fyrirtæki á Íslandi hafa líka svipaða sögu að segja af viðskiptum sínum við Móberg. Það kemur því ekki á óvart að verkefnum Móbergs hér á landi hafi fjölgað og líklegt er að sú þróun haldi áfram.“

Greinin birtist í heild í Morgunblaðinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka