Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF), var gestur í viðskiptahluta Dagmála þessa vikuna. Rætt var um framtíð og rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja, ársfund SFF sem haldinn var á dögunum og ýmislegt fleira.
Spurð hverjar séu helstu áskoranirnar sem fjármálakerfið glími við í dag segir Heiðrún að það sé að sjálfsögðu háir vextir og verðbólga.
„Það er ekki bara fjármálakerfið heldur náttúrulega er það bara allt samfélagið sem að kallar eftir því að við náum tökum á verðbólgunni og vextir lækki í kjölfarið. Þetta er á réttri leið og vonandi kemur ekkert bakslag í það. Ef við horfum bara svona til síðustu ára þar sem fjármálakerfið, að stóru bankarnir sérstaklega en fjármálakerfið í heild líka, hefur náð þarna góðum tökum í kostnaðaraðhaldi. Kostnaðarhlutfall bankanna og fyrirtækjanna hefur lækkað mikið, þá ekki síst bara út af stafrænni þróun og sjálfvirkni væðingu," segir Heiðrún og bendir á að þannig hafi náðst góðir og mikilvægir áfangar.
„Við erum náttúrulega bara mjög ánægð með það. Við höfum hins vegar verið að horfa svolítið til þess núna hjá SFF að að við höfum af því á svona ákveðnar áhyggjur af samkeppnishæfni þarna okkar Íslands á þessu sviði," segir Heiðrún.
Hún vísar í niðurstöðu sem kynntar voru á fundi SFF í janúar.
„Við erum með hærri eiginfjárbindingar og svo er bindiskyldan hér þrjú prósent en eitt prósent víðast hvar í kringum okkur. Og þetta er náttúrulega eitthvað sem skekkir þarna samkeppnishæfnina, en þó ekki þannig að við séum ekki samkeppnishæf. En við sem bara þjóð þurfum almennt að horfa til samkeppnishæfni," segir Heiðrún.
Áskrifendur Morgunblaðsins geta horft á þáttinn í heild sinni hér: