„Hraðahindrun frekar en vegatálmi"

Í ljósi nýrra mælinga þarf Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri að líkindum …
Í ljósi nýrra mælinga þarf Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri að líkindum að leggjast yfir reiknistokkinn fyrir vaxtaákvörðunarfundinn 21. maí. mbl.is/Karítas

Ársverðbólga mæld­ist 4,2% í apríl, sam­kvæmt nýj­ustu töl­um Hag­stofu Íslands sem birt­ar voru í gær. Þetta er hækk­un úr 3,8% í mars. Hækk­un­in kom að nokkru leyti á óvart þar sem spár viðskipta­banka voru lægri og olli mæl­ing­in því von­brigðum. Nokkr­ir leiðandi aðilar sam­fé­lags­ins létu stór orð falla í kjöl­farið.

ViðskiptaMogg­inn leitaði til Haf­steins Hauks­son­ar, aðal­hag­fræðings Kviku banka, sem seg­ir í þessu sam­hengi:

„Ég held að markaður­inn hafi verið svekkt­ur yfir að verðbólg­an skyldi fara aft­ur svona hressi­lega yfir vik­mörk eft­ir góðan ár­ang­ur síðustu mánuði, enda myndaðist smá­veg­is söluþrýst­ing­ur á óverðtryggð rík­is­bréf eft­ir að tal­an birt­ist. Sem bet­ur fer finnst mér þó ólík­legt að mæl­ing­in sé til marks um að verðbólg­an sé að lenda á vegg. Und­an­far­in tvö ár höf­um við áður fengið svona bak­slag í hjöðnun verðbólg­unn­ar og þau reynst tíma­bund­in þegar upp er staðið.“

Lík­ur á vaxta­lækk­un í næstu vaxta­ákvörðun Seðlabanka Íslands, sem verður til­kynnt 21. maí, hafa sam­kvæmt grein­ing­araðilum minnkað, nefn­ir Lands­bank­inn það sem dæmi í Hag­sjá um viðbrögð við töl­un­um. Neysla lands­manna held­ur áfram að aukast, hús­næðis­verð hækk­ar og verðbólgu­vænt­ing­ar eru áfram mikl­ar.

„Ég á von á því að þessi mæl­ing sé hraðahindr­un frek­ar en vegatálmi í hjöðnun verðbólg­unn­ar. Verðbólg­an ætti að stinga sér aft­ur und­ir vik­mörk strax í maí og hún gæti svo farið áfram lækk­andi fram á sum­ar. Ég hef mest­ar áhyggj­ur af vax­andi tregðu í inn­lenda hluta verðbólg­unn­ar, sem er að hluta til drif­inn áfram af hækk­un launa­kostnaðar í byrj­un árs. Þetta gæti tor­veldað síðustu míl­una í átt að mark­miði, en ég hef þrátt fyr­ir það trú á því að verðbólga kom­ist var­an­lega und­ir vik­mörk á næstu mánuðum og verðbólg­an hald­ist á bil­inu 3-4% næsta kastið.“

Varðandi næsta vaxta­ákvörðun­ar­fund og framtíð vaxta­lækk­un­ar­ferl­is­ins seg­ir Haf­steinn:

„Ég hafði gert mér von­ir um að 50 punkta vaxta­lækk­un yrði á mat­seðli pen­inga­stefnu­nefnd­ar í maí, en lík­lega ger­ir þessi von­brigðamæl­ing út af við þá von. Hingað til hef­ur nefnd­in aðallega viljað lækka vexti í takti við hjöðnun verðbólgu, og því er kannski ekki að sjá að það sé veru­legt svig­rúm til lækk­un­ar vaxta þegar verðbólg­an hef­ur ekk­ert lækkað frá síðasta fundi nefnd­ar­inn­ar í mars.

„Við gæt­um engu að síður fengið var­færna 25 punkta lækk­un, enda er langt hlé fram að næsta fundi nefnd­ar­inn­ar í ág­úst og horf­ur á að verðbólga gangi niður í sum­ar á sama tíma og veik­leik­ar blasa við í ytra um­hverfi hag­kerf­is­ins vegna óvissu í alþjóðahag­kerf­inu. Nefnd­in gæti því ákveðið að það sé rétt­læt­an­legt að losa aðhaldið um hænu­skref til skamms tíma í ljósi aðstæðna,“ bæt­ir Haf­steinn við að lok­um.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK