Tesla hafnar fréttum WSJ

Sjálfskipaður fulltrúi gagnrýnenda á DOGE og Musk telur það rétt …
Sjálfskipaður fulltrúi gagnrýnenda á DOGE og Musk telur það rétt sinn að fremja skemmdarverk á starfsstöð Tesla. AFP/Stephanie Keith

Meðlim­ir stjórn­ar Tesla hafa vísað á bug frétt Wall Street Journal (WSJ) um að fyr­ir­tækið hafi und­an­farið leitað að nýj­um for­stjóra til að koma í stað Elons Musks.

Robyn Den­holm stjórn­ar­formaður Tesla sagði í yf­ir­lýs­ingu á sam­fé­lags­miðlin­um X að stjórn­in hefði full­komið traust á Musk og sagði frétt WSJ kolranga.

Í frétt WSJ, sem birt var 1. maí, kom fram að stjórn Tesla hefði fyr­ir um mánuði leitað til ráðning­ar­fyr­ir­tækja til að finna eft­ir­mann Musks, einkum vegna óánægju með aðkomu hans að rík­is­stjórn Don­alds Trumps. Þar gegn­ir Musk nú lyk­il­hlut­verki sem yf­ir­maður nýrr­ar stofn­un­ar, Depart­ment of Go­vern­ment Efficiency (DOGE), sem á að skera niður rík­is­út­gjöld og hef­ur sann­ar­lega verið um­deild­ur í því verk­efni.

Tesla hef­ur mátt þola aukna gagn­rýni frá hlut­höf­um vegna tengsla Musks við stjórn­mál og aukna fjar­veru hans frá dag­leg­um rekstri fyr­ir­tæk­is­ins. Þá hef­ur andstaða gegn Musk auk­ist í formi mót­mæla og skemmd­ar­verka við Tesla-stöðvar víða um Evr­ópu og Banda­rík­in.

Sam­kvæmt heim­ild­um WSJ hef­ur stjórn­ar­maður­inn JB Straubel átt fundi með stór­um fjár­fest­um til að reyna að lægja öld­urn­ar og styrkja trú á framtíðar­sýn fyr­ir­tæk­is­ins.

Robyn Den­holm hef­ur áður verið gagn­rýnd fyr­ir að vera of tengd Musk, meðal ann­ars vegna aðkomu að um­deildri kaupréttaráætl­un Musks. Sjálf virðist hún hafa selt Tesla-hluta­bréf ný­verið fyr­ir um 33,7 millj­ón­ir doll­ara, tæpa 4,5 millj­arða króna.

Í öllu falli virðist stjórn Tesla með þessu senda skýr skila­boð um að Musk haldi áfram sem for­stjóri og njóti til þess verk­efn­is stuðnings stjórn­ar. Spurn­ing­in er hvort Musk gef­ur sér tíma í verk­efnið.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK