Eik fasteignafélag er vel í stakk búið fyrir innri og ytri vöxt að sögn Hreiðars Más Hermannssonar nýs forstjóra félagsins. Hann segir frá sinni sýn á rekstur Eikar, reynslu sinni á fjármálamarkaði og skoðun sinni á skuldsetningu félagsins ásamt fleiru í ítarlegu viðtali í ViðskiptaMogganum.
Hreiðar lýsir því að innri vöxtur félagsins verði drifinn áfram með aukinni nýtingu núverandi eigna og hærri nýtingarhlutföllum á lóðum í framtíðinni. Að sama skapi sé félagið vel í stakk búið til ytri vaxtar, þar sem fjárhagsleg staða þess sé sterk og svigrúm til fjárfestinga fyrir hendi. Hreiðar leggur þó áherslu á að engin augljós tækifæri til samruna eða yfirtöku á öðrum fasteignafélögum séu í sjónmáli eins og er, en bætir við að slík mál séu yfirleitt frekar rædd „bak við tjöldin“.
Varðandi helstu áskoranir sem fasteignafélög standa frammi fyrir í dag segir Hreiðar að hann sjái í raun lítið sem hindri vöxt og framgang félagsins. „Við störfum í ótrúlega góðu og jákvæðu viðskiptalegu umhverfi hér á Íslandi. Við viljum hvert öðru almennt vel og stofnanafjárfestar okkar vilja okkur vel,“ segir hann og lýsir mikilli bjartsýni á komandi tíma hjá Eik.
Þegar hann er spurður hvort hann sjái tækifæri í samruna eða samstarfi við önnur fasteignafélög svarar hann: „Ekkert sem mér finnst alveg augljóst,“ og bætir við að hann myndi alltaf vinna í þá átt sem samræmist stefnu félagsins.
Varðandi það hvernig Eik ætli að aðgreina sig frá samkeppninni segir Hreiðar að hann sé enn að stíga sín fyrstu skref í starfi og kveðst ekki enn hafa fullmótaða sýn á það. Hann leggur þó strax áherslu á að Eik ætli að vera ábyrgur þátttakandi í vaxtarbroddum íslensks atvinnulífs.
„Við eigum að vera þátttakendur í þeirri þróun sem verður,“ segir hann og nefnir að Eik vilji fjárfesta í atvinnugreinum eins og fiskeldi, ferðaþjónustu og iðnaði – eftir því sem atvinnulífið kalli á.
Þá horfir Eik einnig til frekari þróunar í íbúðauppbyggingu á einstaka svæðum, en Hreiðar leggur áherslu á að kjarni félagsins verði áfram atvinnuhúsnæði. „Við erum fyrst og fremst atvinnuhúsnæðisfélag,“ segir hann, og útskýrir að þó að þróunareignir séu áhugaverðar séu þær aðeins lítið hlutfall af safni og tekjum félagsins og engar ákvarðanir hafi verið teknar um að leggjast í umfangsmikla þróun.
Fyrirtækið hefur einnig breikkað eignasafn sitt innan atvinnuhúsnæðis, með aukinni áherslu á vöruhús og iðnaðarhúsnæði, sérstaklega í ljósi fyrirhugaðra kaupa á eignum Samskipa, sem félagið hefur tilkynnt um að séu í einkaviðræðum. Hreiðar segir það hluta af því að bæta dreifingu eignanna innan safnsins, þó án stórfelldra breytinga.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.