Forstjórabreytingin hefur engin áhrif á starfsemi Kerecis

Guðmundur Fertram Sigurjónsson er forstjóri Kerecis.
Guðmundur Fertram Sigurjónsson er forstjóri Kerecis. mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson

Danska lækn­inga­tæknifyr­ir­tækið Coloplast til­kynnti í gær að for­stjóri þess, Kristian Vill­umsen, hafi sagt starfi sínu lausu. Til að tryggja sam­fellu í rekstri mun stjórn­ar­formaður­inn Lars Rasmus­sen, sem gegndi for­stjóra­stöðu hjá Coloplast á ár­un­um 2008 til 2018, taka við sem tíma­bund­inn for­stjóri. 

Kristian hef­ur starfað hjá Coloplast í 17 ár og gegnt for­stjóra­stöðu frá 2018. Á hans stjórn­artíð hef­ur fyr­ir­tækið lagt áherslu á að stækka starf­semi sína á há­vaxt­ar­mörkuðum, meðal ann­ars með kaup­um á Atos Medical árið 2021 fyr­ir 2,5 millj­arða doll­ara og ís­lenska fyr­ir­tæk­inu Kerec­is fyr­ir 1,3 millj­arða doll­ara árið 2023. Þrátt fyr­ir ár­ang­ur í nýj­um rekstr­arein­ing­um hef­ur vöxt­ur í eldri ein­ing­um staðið í stað, sem hef­ur haft nei­kvæð áhrif á gengi hluta­bréfa fyr­ir­tæk­is­ins og tal­in ástæða starfs­loka Kristians.

Stjórn Coloplast hef­ur til­kynnt að leit að nýj­um for­stjóra muni hefjast strax og er gert ráð fyr­ir að nýr for­stjóri verði ráðinn inn­an 12 mánaða. Á meðan mun Lars vinna náið með fram­kvæmda­stjórn til að tryggja stöðug­leika og halda áfram með stefnu­mót­un fyr­ir­tæk­is­ins. 

Morg­un­blaðið leitaði til Guðmunds Fer­trams Sig­ur­jóns­son­ar, for­stjóra Kerec­is, sem bend­ir á:

„Það er leiðin­legt að Kristian skuli vera hætt­ur. Hann er af­skap­lega fram­sýnn stjórn­andi eins og kaup­in hans á Kerec­is sýna. Stjórn­ar­formaður­inn Lars Rasmus­sen tek­ur við og hlakka ég til að vinna með hon­um en hann auðvitað þekk­ir mjög vel til Kerec­is og kynnti sér starf­semi Kerec­is ít­ar­lega þegar Coloplast var að skoða Kerec­is og var svo einn af þeim sem tóku ákvörðun­ina um kaup­in. For­stjóra­breyt­ing­in hef­ur eng­in áhrif á starf­semi Kerec­is og hlakka ég til að starfa áfram með starfs­mönn­um og viðskipta­vin­um Kerec­is að áfram­hald­andi út­breiðslu sárroðsins frá Ísaf­irði.”

Sam­kvæmt heim­ild­um Morg­un­blaðsins er Guðmund­ur Fer­tram einn þeirra sem til greina kem­ur í stól for­stjóra Coloplast. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK