Margrét hættir sem forstjóri Nova

Margrét Tryggvadóttir, fráfarandi forstjóri Nova.
Margrét Tryggvadóttir, fráfarandi forstjóri Nova. Ljósmynd/Gunnar Svanberg

Mar­grét Tryggva­dótt­ir, for­stjóri Nova, hef­ur óskað eft­ir að láta af störf­um eft­ir 18 ár í lyk­il­hlut­verki hjá fé­lag­inu. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar.

Hún hef­ur verið hluti af Nova frá stofn­un og leitt fé­lagið sem for­stjóri síðastliðin 7 ár. Mar­grét mun gegna starfi sínu áfram til 1. des­em­ber 2025 og verður stjórn fé­lags­ins og arf­taka sín­um inn­an hand­ar við for­stjóra­skipt­in auk þess sem hún mun sinna ráðgjöf fyr­ir fé­lagið eft­ir að hún læt­ur af störf­um.

Fram kem­ur í til­kynn­ingu að rekst­ur Nova skilaði góðri af­komu á fyrsta árs­fjórðungi árs­ins. Heild­ar­tekj­ur voru um 3,3 millj­arðar og juk­ust um 4,0% milli ára. Þjón­ustu­tekj­ur hækkuðu um 6,7% og EBITDA jókst um 9,3%. Hagnaður fjórðungs­ins var 167 millj­ón­ir og eykst um 25,8% milli ára.

Í til­kynn­ingu kem­ur fram að Mar­grét skilji við Nova í stöðugum og traust­um vexti. Af­koma fyrsta árs­fjórðungs 2025 sýn­ir áfram­hald­andi tekju­vöxt, sterk­an EBITDA vöxt og öfl­ugt sjóðstreymi. 

Haft er eft­ir Mar­gréti Tryggva­dótt­ur að ákvörðunin hafi ekki verið auðveld.
„Það hef­ur verið mér ein­stök gæfa að fá að taka þátt í þess­ari mögnuðu veg­ferð Nova – að fá að vaxa og dafna með frá­bæru fólki og eiga þátt í að gera Nova að því sem það er í dag. Það traust sem ég hef notið til að leiða fé­lagið hef­ur verið mér heiður. Ég fyll­ist stolti þegar ég horfi til baka á allt það sem við höf­um byggt upp sam­an – með hug­rekki, gleði og óbilandi trú á því að hægt sé að gera hlut­ina öðru­vísi, skemmti­legri og bet­ur.  Allt hef­ur sinn tíma og nú tel ég rétt­an tíma til að hefja nýj­an kafla – fyr­ir mig og fyr­ir Nova," er haft eft­ir Mar­gréti.

„Ákvörðunin var ekki auðveld – enda bý ég að ómet­an­leg­um minn­ing­um og dýr­mæt­um tengsl­um við Nova liðið, viðskipta­vini og vini sem orðið hafa til á leiðinni. En maður þarf að þora, skora á sjálf­an sig og halda áfram að vaxa. Ég er ótrú­lega stolt af Nova og fólk­inu sem held­ur áfram að leiða fé­lagið með eld­móði og trú á mik­il­vægi ánægju viðskipta­vina, starfs­fólks og sterku vörumerki sem er ein mik­il­væg­asta eign Nova. Framtíð Nova er björt og titl­arn­ir munu halda áfram að koma eft­ir mína tíð – al­veg eins og hjá Li­verpool. Ég er ekki far­in, ég er virk­ur hlut­hafi, hækk­um í tón­list­inni, höf­um gam­an og sigr­um leik­inn!“ er haft eft­ir Mar­gréti í til­kynn­ingu enn frem­ur.

Haft er eft­ir Sig­ríði Ol­geirs­dótt­ur, stjórn­ar­for­manni Nova að hún þakki fyr­ir ómet­an­legt fram­lag og seg­ir starf Mar­grét­ar hafa mótað fyr­ir­tækið djúpt og var­an­lega.

„Mar­grét hef­ur verið drif­kraft­ur í upp­bygg­ingu og ár­angri Nova frá fyrsta degi. Leiðtoga­stíll henn­ar, áræðni og mann­leg­ur tónn hef­ur skapað fyr­ir­tækja­menn­ingu sem við öll erum stolt af. Hún skil­ur við fé­lagið í sterkri stöðu, með öfl­uga stefnu og frá­bært teymi til framtíðar. Við í stjórn­inni þökk­um henni af ein­lægni fyr­ir ómet­an­legt fram­lag og fögn­um áfram­hald­andi sam­starfi í nýju hlut­verki,“ er haft eft­ir Sig­ríði.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK