Ormsson og HTH opna nýja verslun

Kjartan Örn Sigurðsson, forstjóri Ormsson (til hægri) og Matthías Ólafsson, …
Kjartan Örn Sigurðsson, forstjóri Ormsson (til hægri) og Matthías Ólafsson, verslunarstjóri Ormsson á Norðurtorgi (til vinstri).

Ný versl­un Orms­son og HTH opnaði í dag, í versl­un­ar­kjarn­an­um Norður­torgi á Ak­ur­eyri, skv. frétta­til­kynn­ingu. Þar koma sam­an inn­rétt­ing­ar frá danska fram­leiðand­an­um HTH og fjöl­breytt úr­val raf­tækja frá helstu vörumerkj­um.

„Þetta hef­ur gengið von­um fram­ar,“ seg­ir Kjart­an Sig­urðsson, for­stjóri Orms­son. „Að sjálf­sögðu er mik­il vinna að baki og að mörgu að huga þegar kem­ur að svona stóru verk­efni en við erum afar sátt með út­kom­una og hlökk­um til að frum­sýna nýju versl­un­ina.“

HTH inn­rétt­ing­ar verða nú í fyrsta sinn aðgengi­leg­ar á Norður­landi og að sögn Kjart­ans eru mikl­ar vænt­ing­ar bundn­ar við nýja sýn­ing­ar­sal­inn. „Við erum afar spennt að bjóða Norðlend­inga vel­komna í nýja sýn­ing­ar­sal­inn,“ bæt­ir hann við.

Í til­efni opn­un­ar­inn­ar verður hald­in sér­stök opn­un­ar­hátíð dag­ana 8.–11. maí. Þar verður boðið upp á fjöl­breytt opn­un­ar­til­boð og létt­ar veit­ing­ar, nýbakaðar vöffl­ur og kaffi fyr­ir gesti á öll­um aldri og ís fyr­ir börn­in.

Einnig verður sett upp mynd­list­ar­sýn­ing með verk­um eft­ir lista­mann­inn Ella Eg­ils og hægt verður að taka þátt í happ­drætti þar sem meðal ann­ars er hægt að vinna HTH eld­hús­inn­rétt­ingu að verðmæti allt að 1,5 millj­ón­ir króna, 50" Sam­sung Frame sjón­varp, Nutri­bull­et bland­ara og fleiri vinn­inga.

„Það verður nóg um að vera í til­efni opn­un­ar­inn­ar,“ seg­ir Hjalti Jóns­son, fram­kvæmda­stjóri viðskiptaþró­un­ar hjá Orms­son og HTH. Hann bend­ir einnig á að fyr­ir tölvu­leikjaunn­end­ur verði hald­in Mario Kart 8 keppni í nýju leikja­rými versl­un­ar­inn­ar þar sem sig­ur­veg­ar­inn fær glæ­nýja Nin­t­endo Switch 2 leikja­tölvu í verðlaun.

Versl­un­in verður opin frá kl. 10–18 á fimmtu­dag og föstu­dag, en frá kl. 11–16 um helg­ina.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK