Þungur rekstur hjá WW

WW International, áður þekkt sem WeightWatchers, hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum.
WW International, áður þekkt sem WeightWatchers, hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum.

WW In­ternati­onal, áður þekkt sem Weig­htWatchers, hef­ur óskað eft­ir gjaldþrota­skipt­um sam­kvæmt kafla 11 í Banda­ríkj­un­um. Kafli 11 veit­ir fyr­ir­tækj­um tíma­bundna laga­lega vernd gegn kröfu­höf­um á meðan þau vinna að samþykktri end­ur­skipu­lagn­ingu. WW hyggst nýta þetta ferli til að styrkja fjár­hags­stöðu sína en fé­lagið áætl­ar að ljúka ferl­inu inn­an 45 daga.

Sam­kvæmt yf­ir­lýs­ingu for­stjór­ans, Tara Comonte, sem tók við stjórn­ar­taum­un­um árið 2024, mun þessi aðgerð skapa svig­rúm til að hraða nauðsyn­legri ný­sköp­un, þróa þjón­ustu tengda heilsu og þyngd­ar­stjórn­un og fjár­festa áfram í meðlim­um fyr­ir­tæk­is­ins. Hún seg­ir rekst­ur­inn halda áfram á meðan á ferl­inu stend­ur og að um 72% lán­veit­enda hafi nú þegar lýst yfir stuðningi við áætl­un­ina.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK