Sala á heitum pottum hjá NormX í Auðbrekku í Kópavogi hefur tekið mikinn kipp nú í vor og kveðst Orri Stefánsson, sölu- og verslunarstjóri, aðspurður ekki hafa haldbæra skýringu á aukningunni. Hann segir að kannski sé góð tíð nú á vormánuðum hluti af skýringunni.
Sala á pottum jókst gríðarlega í faraldrinum bæði hjá NormX og í öðrum pottaverslunum, en hefur dregist saman síðan þá og haldist stöðug, eins og Orri útskýrir í samtali við Morgunblaðið. „Árleg sala margfaldaðist í faraldrinum, en hún hefur róast síðan og náð ákveðnu jafnvægi. Nú er mikil aukning sem kemur pínu á óvart.“
NormX steypir alla sína potta í verksmiðju félagsins í Vogum á Vatnsleysuströnd, að rafmagnspottum undanskildum. „Við byrjuðum að selja rafmagnspotta í fyrra. Við flytjum þá inn frá Finnlandi. Salan hefur farið rólega af stað. Þetta er gæðaframleiðandi en kannski í dýrari kantinum miðað við það sem flutt er inn til landsins frá Kína. Svo virðist sem fólk horfi minna í gæðin í þessari tegund heitra potta en spái þeim mun meira í verðið. Við völdum framleiðandann því við vildum geta selt þessa vöru með góðri samvisku. Finnar búa við svipað veðurfar og við og vita við hverju má búast.“
Á síðasta ári hóf NormX, sem selt hefur heita potta síðan 1982, innreið sína á sánumarkaðinn en mikið gufubaðsæði hefur gripið landann síðustu misseri. NormX vildi vera með í þeirri bylgju, að sögn Orra.
„Við bjóðum upp á sánur frá Saunasell í Eistlandi. Eistar eru mikil gufubaðsþjóð rétt eins og Finnar. Saunasell er einn stærsti sánuframleiðandinn í landinu og hefur verið lengi að,“ segir Orri.
Hann segir eistnesku sánurnar koma í mörgum mismunandi stærðum og gerðum. „Það er hægt að fá þær með einu rými en einnig með hvíldar- eða búningsrými fyrir framan, m.a. Vinsælasta gerðin heitir Patio og er hún fáanleg í sjö mismunandi stærðum. Svo erum við með mjög flotta sánu sem heitir Round Cube. Hún fékk „Red Dot“-hönnunarverðlaun á síðasta ári sem þau hjá Saunasell eru skiljanlega mjög stolt af.“
En ekki er nóg að eiga sánuklefann. Nauðsynlegt er að hafa góðan ofn til að skvetta vatni á og búa þannig til funheita gufu. „Við erum með ofna frá Huum í Eistlandi. Þeir sérhæfa sig í flottum öðruvísi ofnum. Um er að ræða steinkörfur úr ryðfríu stáli. Þú sérð steinana upp úr, niður úr. Þetta er mjög flott hönnun sem fer mjög vel inni í sánunni,“ útskýrir Orri.
Spurður um verð segir Orri að sem dæmi kosti ódýrasta Patio-sánan 1.150 þúsund. „Það er XXS-útgáfan. Við erum einnig með sánutunnur í mörgum stærðum.“ Allar sánurnar eru úr svokölluðum Termo-við sem er hitameðhöndlaður og hentar einstaklega vel í sánuklefa.
Aðspurður segir Orri að það taki sánuna um 45 mínútur að hitna. Hægt er að tengja hana við þráðlaust net og setja í gang í appi á leið heim úr vinnu. „Þetta er svipaður tími og það tekur að láta renna í pottinn,“ segir Orri að lokum.