Pipar\TBWA fjárfestir í gervigreindartólinu Aida Social

Undirritun samningsins, Oyvind Harjo forstjóri Aida, Kristján Hauksson Nordic Strategy …
Undirritun samningsins, Oyvind Harjo forstjóri Aida, Kristján Hauksson Nordic Strategy Director Ceedr, Guðmundur Pálsson framkvæmdarstjóri PiparTBWA og Suzann Webb hjá Aida. Ljósmynd/Aðsend

Aug­lýs­inga­stof­an Pip­ar\TBWA hef­ur fest kaup á hlut í norsk-breska hug­búnaðarfyr­ir­tæk­inu Aida Social, sem þróar gervi­greind­ar­kerfi fyr­ir markaðs- og efn­is­sköp­un.

Aida er hannað til að styðja við fyr­ir­tæki og markaðsteymi við dag­lega efn­is­sköp­un, allt frá sam­fé­lags­miðlaefni og grein­um til frétta­bréfa og al­manna­tengsla. Lausn­in sam­ein­ar hönn­un, sjálf­virkni og stefnu­mót­un í einu kerfi og not­ar gervi­greind, sem lær­ir orðræðu og út­lits­hönn­un viðskipta­vina til að tryggja sam­ræmi í allri miðlun.

„Aida hef­ur vakið mikla at­hygli og er eitt mest spenn­andi kerfi fyr­ir efn­is­sköp­un og ut­an­um­hald í Evr­ópu,“ seg­ir Guðmund­ur Páls­son, fram­kvæmda­stjóri Pip­ars\TBWA í til­kynn­ingu. Hann seg­ir að fjár­fest­ing­in sé liður í áfram­hald­andi framtíðar­sýn stof­unn­ar um að vera leiðandi í sta­f­ræn­um lausn­um og ný­sköp­un. „Við telj­um að Aida muni skipta miklu máli fyr­ir okk­ur og viðskipta­vini okk­ar á næstu árum,“ bæt­ir hann við.

Suz­ann Webb, stefnu­mót­andi hjá Aida, fagn­ar aðkomu Pip­ars og syst­ur­fé­laga þess í Skandi­nav­íu að þróun fyr­ir­tæk­is­ins. Hún seg­ir að sam­starfið muni styðja við vöxt Aida þvert á markaði og tungu­mál.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK