Steindór Arnar Jónsson hefur verið ráðinn tæknistjóri hjá IDS

Steindór Arnar Jónsson tæknistjóri hjá IDS á Íslandi.
Steindór Arnar Jónsson tæknistjóri hjá IDS á Íslandi. Ljósmynd/Aðsend

Stein­dór Arn­ar Jóns­son hef­ur verið ráðinn tækn­i­stjóri hjá IDS á Íslandi, sem veit­ir heild­ar­lausn­ir í hug­búnaði og vél­búnaði fyr­ir gagna­ver. Stein­dór kem­ur til IDS frá Íslenskri erfðagrein­ingu þar sem hann var for­stöðumaður upp­lýs­inga­tækni, en áður starfaði hann í rúm­an ára­tug hjá Advania. Hann er raf­magns­tækni­fræðing­ur að mennt frá Há­skól­an­um í Reykja­vík.

Guðbrand­ur Rand­ver Sig­urðsson, fram­kvæmda­stjóri IDS, seg­ir í til­kynn­ingu ráðning­una mik­il­væg skref í vexti fyr­ir­tæk­is­ins: „Við lögðum mikla áherslu á að fá Stein­dór til liðs við okk­ur. Þrátt fyr­ir ung­an ald­ur hef­ur hann á að baki um tutt­ugu ára reynslu í upp­lýs­inga­tækni og sérþekk­ingu á gagna­ver­a­rekstri og skýja­lausn­um.“

IDS á Íslandi, sem fagn­ar ársaf­mæli næsta haust, er með höfuðstöðvar á Sel­fossi og starfs­stöð í Reykja­vík. Fyr­ir­tækið er í eigu sænska upp­lýs­inga­tæknifyr­ir­tæk­is­ins Hexatronic.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK