Von á 300 manns frá flestum Evrópulöndum

Verðlaunaafhending Young Inventors Prize verður í Hörpu 18. júní.
Verðlaunaafhending Young Inventors Prize verður í Hörpu 18. júní. mbl.is/Kristinn Magnússon

Evr­ópska einka­leyf­a­stof­an (EPO) held­ur verðlauna­af­hend­ingu, Young In­ventors Prize, í Hörpu þann 18. júní kl. 16:00. Tíu ung­ir frum­kvöðlar und­ir 30 ára aldri verða heiðraðir fyr­ir ný­sköp­un sem stuðlar að sjálf­bær­ari framtíð í anda þró­un­ar­mark­miða Sam­einuðu þjóðanna.

Í til­kynn­ingu kem­ur fram að verk­efn­in varði meðal ann­ars kol­efn­is­föng­un frá skip­um, end­ur­vinnslu sjald­gæfra efna, snjall­merki gegn mat­ar­sóun og lausn­ir við ra­f­ræn­an úr­gang. Þátt­tak­end­ur koma víðsveg­ar að úr heim­in­um og voru vald­ir úr rúm­lega 450 um­sókn­um.

Verðlauna­af­hend­ing­unni verður streymt í beinni út­send­ingu á net­inu og er öll­um opin. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi verðlaun eru veitt við sér­staka viðhöfn. Áður hafa þau verið veitt á verðlauna­af­hend­ingu Ný­sköp­un­ar­verðlauna Evr­ópu (Europe­an In­ventor Aw­ard). Frá og með viðhöfn­inni í Hörpu verður þetta sér­stök at­höfn, hald­in annað hvert ár. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK