EVE Online er sérstakt hagkerfi

Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri tölvuleikjafyrirtækisins CCP, segir ýmislegt á döfinni …
Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri tölvuleikjafyrirtækisins CCP, segir ýmislegt á döfinni hjá fyrirtækinu. Ljósmynd/Aðsend

Helsta áskor­un tölvu­leikja­fyr­ir­tæk­is­ins CCP er ekki vöxt­ur, held­ur sam­keppni. Þetta seg­ir Hilm­ar Veig­ar Pét­urs­son fram­kvæmda­stjóri CCP í sam­tali við ViðskiptaMogg­ann.

Hann lýs­ir því að tölvu­leikja­markaður­inn sé mettaður, með ótrú­lega miklu magni nýrra leikja sem birt­ast bæði á hefðbundn­um leikja­veit­um og á farsíma­vett­vangi. „Það eru yfir 100.000 leik­ir á Steam,“ seg­ir Hilm­ar.

„Og þegar kem­ur að snjallsíma­for­rit­um, þá eru gef­in út hundruð nýrra leikja á hverj­um ein­asta degi.“

Tölvu­áhug­inn kviknaði snemma

Hilm­ar er fædd­ur í Kópa­vogi en ólst upp í Garðabæ. Hann lærði tölv­un­ar­fræði í Há­skóla Íslands og hóf störf í hug­búnaðar­geir­an­um árið 1996 hjá hug­búnaðarfyr­ir­tæk­inu Oz. Þar vann hann við að þróa hug­búnaðarlausn­ir, líkt og marg­ir aðrir í brans­an­um á þeim tíma. Í byrj­un árs 2000 tók hann við starfi tækn­i­stjóra hjá CCP, en fjór­um árum síðar, í mars 2004, varð hann fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins. Í mars á þessu ári fagnaði hann 25 ára starfsaf­mæli hjá CCP.

Þessi grein birt­ist
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Þessi grein birt­ist
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK