Horfa til innri vaxtar

Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri tölvuleikjafyrirtækisins CCP, segir ýmislegt á döfinni …
Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri tölvuleikjafyrirtækisins CCP, segir ýmislegt á döfinni hjá fyrirtækinu. Ljósmynd/Aðsend

Þegar kem­ur að framtíðar­vexti, þá horf­ir CCP aðallega til innri vaxt­ar. Hilm­ar Veig­ar Pét­urs­son seg­ir í sam­tali við ViðskiptaMogg­ann að nú séu þeir að leggja loka­hönd á þrjá mjög um­fangs­mikla leiki sem hafi verið í vinnslu um langt skeið – og það skipti öllu máli hvernig þeim verði tekið á markaði. Samrun­ar og yf­ir­tök­ur séu ekki í kort­un­um að svo stöddu. „Við sjá­um okk­ur aðallega vaxa með okk­ar eig­in verk­efn­um,“ seg­ir hann.

Hilm­ar lýs­ir einnig stolti yfir ís­lensk­um leikjaiðnaði og þeirri þróun sem orðið hef­ur á síðustu árum. Hann seg­ir CCP hafa stutt við ýmis ný sprota­fyr­ir­tæki í upp­hafi og að það gleðji hann að sjá ár­ang­ur þeirra. Hann nefn­ir sér­stak­lega fyr­ir­tæk­in 1939 Games, Ald­in, og Main­frame sem dæmi um fyr­ir­tæki sem eru að gera góða hluti og hafi náð mik­illi vel­gengni und­an­farið. „Við trú­um því að því fleiri góð fyr­ir­tæki sem verða til á Íslandi, þeim mun meira lyft­ist all­ur geir­inn.“

Þessi grein birt­ist
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Þessi grein birt­ist
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK