Krefjast viðskiptaverndar í formi tolla

PCC rekur verksmiðju við Bakka á Húsavík þar sem framleiddur …
PCC rekur verksmiðju við Bakka á Húsavík þar sem framleiddur er kísilmálmur. mbl.is/Hari

PCC Bakk­iSilicon hf. (PCC) hef­ur kært inn­flutn­ing á kís­il­málmi frá Kína til fjár­mála- og efna­hags­ráðuneyt­is­ins og krefst viðskipta­vernd­ar. ESB og Banda­rík­in hafa gripið til slíkra aðgerða.

Fé­lagið seg­ir inn­flutn­ing á veru­legu und­ir­verði hafi leitt til al­var­legs sam­keppn­is­halla, lægra sölu­verðs og rekstr­aró­vissu sem setji framtíð 120 starfa og 30 millj­arða fjár­fest­ingu í upp­nám.

PCC rek­ur verk­smiðju við Bakka á Húsa­vík þar sem fram­leidd­ur er kís­il­málm­ur. Stærsti eig­andi er þýska fyr­ir­tækið PCC SE í Þýskalandi með 65% eign­ar­hlut en 35% eiga inn­lend­ir líf­eyr­is­sjóðir og Íslands­banki.

Morg­un­blaðið leitaði til Kára Marís­ar Guðmunds­son­ar for­stjóra PCC vegna stöðunn­ar:

„Útlitið er mjög dökkt og við höf­um reynt að halda starfs­fólki upp­lýstu sem og öll­um lyk­ilaðilum á svæðinu, sveit­ar­stjórn og verka­lýðsfé­lög­um og einnig birgj­um og viðskipta­vin­um. Við met­um stöðuna í hverri viku og lát­um vita um leið og eitt­hvað breyt­ist. En út­litið er ákaf­lega dökkt.“

Nán­ari um­fjöll­un má finna í Morg­un­blaðinu í dag. Einnig má nálg­ast hana án end­ur­gjalds í Mogg­an­um, nýju appi Morg­un­blaðsins og mbl.is.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK