Berjaya Coffee Iceland, dótturfélag malasíska fyrirtækisins Berjaya Food Berhad, hefur ráðið Daníel Kára Stefánsson sem framkvæmdastjóra Starbucks á Íslandi.
Fyrsta kaffihús alþjóðlega kaffirisans verður opnað hér á landi í maí.
„Ég hlakka til að sjá fyrstu Starbucks kaffihúsin á Íslandi opna dyr sínar, eftir margra mánaða samstarf og vinnu hjá teyminu okkar, bæði hér á Íslandi og í Malasíu. Ég vona að reynsla mín úr veitinga- og þjónustugeiranum muni nýtast vel hjá Starbucks á Íslandi, en það sem skiptir mestu máli er hversu ánægður ég er að fá að starfa með svo metnaðarfullu og reyndu starfsfólki,“ er haft eftir Daníel Kára í tilkynningu.