Hagnaður fasteignafélagsins Heima var 1,4 milljarðar króna á fyrsta fjórðungi þessa árs samanborið við 3,9 milljarða króna á sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í nýbirtu uppgjöri félagsins.
Fjárfestingaeignir félagsins voru bókfærðar á 194 milljarða króna. Matsbreyting fjárfestingaeigna nam um 1,5 milljörðun króna á fyrstu þremur mánuðum ársins.
Rekstrartekjur námu 3.686 milljónum króna fyrstu þrjá mánuði ársins og þar af námu leigutekjur 3.486 milljónum króna Leigutekjur hafa hækkað um 4,3% samanborið við sama tímabil 2024, en nokkrar breytingar hafa orðið á eignasafninu á milli ára sem hafa áhrif á leigutekjur. Þegar leiðrétt er fyrir áhrifum vegna seldra eigna er hækkunin um 5,9%, sem jafngildir um 1,2% raunaukningu. Rekstrarhagnaður fyrir söluhagnað, matsbreytingu og afskriftir (EBITDA) var 2.449 milljónir króna sem samsvarar 3,2% aukningu samanborið við sama tímabil 2024.
Fjárhagsstaða félagsins er sterk og fjárhagsleg skilyrði vel innan marka lánaskilmála. Eiginfjárhlutfall er 31,9% (skilyrði 25%) og skuldsetningarhlutfall 62,8%. Í lok tímabilsins var handbært fé 5.113 milljónir króna og auk þess hafði félagið aðgang að ónýttum lánalínum að fjárhæð 4.700 milljónir króna í lok tímabilsins.
Bankalán sem voru á gjalddaga 2026 hafa verið endurfjármögnuð og færist lokagjalddagi til ársins 2031. Að þeirri endurfjármögnun lokinni eru engar skuldir á lokagjalddaga á árunum 2025-26 fyrir utan 1.240 milljóna króna skuldabréfaflokk á gjalddaga í júlí á þessu ári.
Haft er eftir Halldór Benjamín Þorbergssyni forstjóra Heima í tilkynningu að reksturinn hafi gengið vel og sé í takti við metnaðarfullar áætlanir.
„Við finnum fyrir mikilli eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði, sérstaklega á kjarnasvæðum Heima. Tekjuvöxtur leigutekna er 4,3% miðað við sama tímabil í fyrra. Sala eigna utan kjarnasvæða félagsins dregur úr tekjuvexti milli ára, en rauntekjuvöxtur á sambærilegu eignasafni milli ára er 1,2%. Félagið skoðar ætíð tækifæri til sölu tiltekinna eigna jafnt og ytri fjárfestingar og hefur heildarfermetrum í eignasafninu fækkað um tæp 2% frá árslokum 2022 með stefnumiðaðri eignasölu. Á árinu 2024 seldi félagið eignir fyrir 3,3 milljarða þar sem verðið var að meðaltali ríflega 10% yfir bókfærðu virði. Við horfum með tilhlökkun til næstu missera og sjáum þar fjölmörg tækifæri til aukinnar verðmætasköpunar fyrir haghafa félagsins,“ er haft eftir Halldór í tilkynningu.