Hispurslausir sprotar í nýsköpunarviku

Stefán Baxter með hópi starfsfólks fyrirtækisins. Dr. Óli Páll stendur …
Stefán Baxter með hópi starfsfólks fyrirtækisins. Dr. Óli Páll stendur vinstra megin við Stefán í grænum bol. Ljósmynd/Aðsend

Hug­búnaðar­húsið Snjall­gögn held­ur op­inn viðburð í Húsi Máls og menn­ing­ar við Lauga­veg, miðviku­dag­inn 14. maí kl. 14:00.

Fram kem­ur í til­kynn­ingu að viðburður­inn sé hluti af Ice­land Innovati­on Week 2025, sem er ár­leg upp­skeru­veisla ís­lenskra sprota­fyr­ir­tækja. Á viðburðinum munu for­svars­menn þessa fimmtán manna sprota­fyr­ir­tæk­is stíga á svið og deila reynslu sinni af þróun gervi­greind­ar­lausna á hisp­urs­laus­an hátt með áherslu á hindr­an­ir og hras­an­ir.

Fyr­ir svör­um verða þeir Stefán Baxter, stofn­andi og for­stjóri Snjall­gagna, og Dr. Óli Páll Geirs­son, meðstofn­andi og yf­ir­maður gagna­vís­inda hjá fyr­ir­tæk­inu. Stefán kveður þá fé­laga ætla að miðla lær­dómi af viðburðaríkri veg­ferð sem hafi ein­kennst af kráku­stíg­um og út­úr­dúr­um, enda sé ferðalag ný­sköp­un­ar­fyr­ir­tækja aldrei beinn og breiður veg­ur.  Að sögn Stef­áns verður öll­um spurn­ing­um úr sval svarað og erfiðar spurn­ing­ar verða boðnar sér­stak­lega vel­komn­ar. 

,,Við Óli eig­um eng­in leynd­ar­mál og ætl­um á viðburðinum að veita inn­sýn í þau raun­veru­legu verk­efni og áskor­an­ir sem fylgja því að þróa hug­búnaðarlausn­ir sem byggja á gervi­greind. Þetta verður opið og hrein­skilið sam­tal um það sem hef­ur gengið upp og það sem hef­ur farið öðru­vísi en áætlað var. Von­andi skemmti­leg sögu­stund með nyt­söm­um heil­ræðum, sem munu spanna allt frá fjár­mögn­un, rekstri og tekj­um til tækni­legra viðfangs­efna og tungu­mála­lík­ana,” er haft eft­ir Stefáni í til­kynn­ing­unni. 

Viðburður­inn er ókeyp­is og öll­um op­inn, en óskað er eft­ir skrán­ingu gesta.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK