Arnar ráðinn forstöðumaður hjá OK

Arnar S. Gunnarsson er nýr forstöðumaður Öryggislausna hjá tæknifyrirtækinu OK.
Arnar S. Gunnarsson er nýr forstöðumaður Öryggislausna hjá tæknifyrirtækinu OK. Ljósmynd/Aðsend

Arn­ar S. Gunn­ars­son hef­ur verið ráðinn for­stöðumaður Örygg­is­lausna OK sem er nýtt svið inn­an tæknifyr­ir­tæk­is­ins.

Seg­ir í til­kynn­ingu að Arn­ar komi til OK frá Control­ant þar sem hann starfaði í fjög­ur ár og bar meðal ann­ars ábyrgð á ör­ygg­is- og tækni­mál­um fé­lags­ins. Áður starfaði hann sem innviðahönnuður hjá Ari­on banka og þar áður var hann tækn­i­stjóri hjá Origo. 

Hann er með MBA-gráðu frá Há­skól­an­um í Reykja­vík auk fjölda alþjóðlegra vott­ana í ör­ygg­is- og tækni­mál­um.

„Það er bæði spenn­andi og krefj­andi verk­efni að leiða nýtt svið Örygg­is­lausna OK. Við ætl­um að bjóða upp á öfl­uga ráðgjöf og byggja upp enn öfl­ugra fram­boð í ör­ygg­is­lausn­um. Við ætl­um að veita þess­um mik­il­væga mála­flokki aukið vægi til að styðja enn bet­ur við okk­ar viðskipta­vini og mæta aukn­um kröf­um á heimsvísu,“ seg­ir Arn­ar í til­kynn­ing­unni. 

Hann hef­ur starfað við tækni- og ör­ygg­is­mál í yfir 20 ár og þekk­ir því vel til í þess­um geira. „Ég hef sér­hæft mig í stjórn­un, ráðgjöf og út­tekt­um í þess­um mála­flokki og hef unnið með flest­um stærstu fyr­ir­tækj­um lands­ins. Í yfir ára­tug hef ég haldið nám­skeið og fyr­ir­lestra á alþjóðavett­vangi til að hjálpa fólki og fyr­ir­tækj­um að skilja enn bet­ur þetta lands­lag og þær áhætt­ur sem geta leynst þarna,“ seg­ir Arn­ar enn frem­ur.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK