Eyjólfur Árni Rafnsson, fráfarandi formaður Samtaka atvinnulífsins, segist í ítarlegu samtali við ViðskiptaMoggann hafa áhyggjur af því að stjórnvöld hugsi ekki til enda um afleiðingar af veiðigjaldafrumvarpinu.
„Mínar áhyggjur snúa að því að ekki sé hugsað til enda um afleiðingarnar af því sem verið er að gera. Ég hef aldrei orðið var við að sjávarútvegurinn, frekar en aðrar atvinnugreinar, vilji ekki greiða fyrir afnot af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar. Svo er auðvitað spurningin hvað er mikið og lítið í því samhengi. Mér finnst þessi aðferðafræði, að miða við markaðsverð á fiski í samfélagi eins og Noregi, eins og verið er að gera, þar sem sjávarútvegurinn er ekki grunnatvinnugrein, varhugaverð. Þá nýtur norskur sjávarútvegur opinbers stuðnings, mismikið eftir landshlutum, sem ruglar myndina líka umtalsvert.
Á Íslandi er gríðarleg verðmætasköpun í sjávarútvegi, allt frá veiðum og vinnslu til útflutnings. Það er verið að gjörnýta fiskinn. Við sjáum það ekki gert í Noregi. En ég hefði viljað sjá meiri undirbúning undir þessa lagasetningu þar sem farið yrði yfir hugsanlegar afleiðingar af því að skattleggja atvinnugreinina með þessum hætti. Þarna er verið að fara í 76% virkan tekjuskatt á eina atvinnugrein, sem er há tala í öllu samhengi. Flýtirinn í þessu máli finnst mér mikill og það vantar upp á betra samtal við atvinnugreinina. Óvissa og ófyrirsjáanleiki vinna gegn atvinnulífinu.“
Þá segir Eyjólfur að hætta sé á að stjórnmálamenn láti ekki hér við sitja heldur snúi sér næst að öðrum útflutnings- og auðlindagreinum með aukna skattheimtu í huga.
Á almennum nótum segir Eyjólfur að SA vilji skýra atvinnustefnu fyrir Ísland.
„Við erum að byrja á öfugum enda án þess að vera búin að ræða um og ákveða hvert við viljum stefna.“
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.