Maó formaður og Trump

Rauðliðar forseta Trump, MAGA.
Rauðliðar forseta Trump, MAGA. AFP/Marco Longari

Ding Xu­eliang, kín­versk­ur stjórn­mála­fræðing­ur sem var sem ung­ur dreng­ur dygg­ur stuðnings­maður Maós á tím­um menn­ing­ar­bylt­ing­ar­inn­ar, seg­ist sjá ákveðin lík­indi milli stefnu Don­alds Trumps og bylt­ing­ar­stjórn­ar Maós. Í sam­tali við CNN, nú í maí, bend­ir Ding á að þótt mun­ur sé mik­ill á alræði í ein­ræðis­ríki og valda­til­b­urðum lýðræðis­kjör­ins leiðtoga end­ur­spegli ákveðnir þætt­ir í stjórn Trumps ein­kenn­in úr menn­ing­ar­bylt­ingu Maós, djúpt van­traust á embættis­kerfi, árás­ir á elítu og bein til­raun til að breyta kerf­inu.

Bar­áttu Trumps gegn „woke“-menn­ingu og ráðstöf­un­um gegn banda­rísk­um há­skól­um er líkt við her­ferð Maós gegn gömlu gild­un­um. Jafn­framt vek­ur aðdáun Trumps á sterk­um leiðtog­um eins og Xi Jin­ping, sem af­nam for­seta­tíma­mörk í Kína árið 2018, at­hygli.

Þrátt fyr­ir þessi lík­indi und­ir­strik­ar Ding í viðtali við CNN að Trump hafi ekki kallað al­menn­ing til fjölda­hreyf­ing­ar líkt og Maó gerði með Rauðu varðliðunum, liðsmenn Trumps eru hins veg­ar með rauðar der­húf­ur. mj@mbl.is

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK