Ummæli ráðherra misráðin í miðju ferli

Ummælin voru látin falla í miðju útboðsferli ríkisins á hlut …
Ummælin voru látin falla í miðju útboðsferli ríkisins á hlut í bankanum þar sem ráðherrann gegnir lykilhlutverki fyrir hönd eiganda. mbl.is/Karítas

Inn­herji er skoðana­dálk­ur ViðskiptaMogg­ans.

Í þess­ari viku hef­ur farið fram útboð á hlut rík­is­ins í Íslands­banka og lýk­ur því í lok dags­ins í dag. Daði Már Kristó­fers­son, fjár­mála- og efna­hags­ráðherra, lýsti því yfir í viðtali við RÚV 13. maí að „ís­lensk­ir bank­ar eru meðal ör­ugg­ustu fjár­fest­inga sem til eru“. Um­mæl­in voru lát­in falla í miðju útboðsferli rík­is­ins á hlut í bank­an­um þar sem ráðherr­ann gegn­ir lyk­il­hlut­verki fyr­ir hönd eig­anda.

Slík­ar op­in­ber­ar yf­ir­lýs­ing­ar eru afar óvenju­leg­ar og mjög óheppi­leg­ar í ljósi reglna og viðmiða um jafn­ræði og hlut­leysi á fjár­mála­mörkuðum. Sam­kvæmt lög­um nr. 60/​2021 um aðgerðir gegn markaðssvik­um, sem inn­leiða reglu­gerðir Evr­ópu­sam­bands­ins um markaðsmis­notk­un, er óheim­ilt að hafa áhrif á verð eða vænt­ing­ar um verð fjár­mála­gern­inga. Meg­in­regla er að tengd­ir aðilar forðist um­mæli sem kunna að hafa áhrif á vænt­ing­ar fjár­festa á meðan útboð stend­ur yfir og gild­ir sér­stak­lega fyr­ir þá sem hafa aðgang að viðkvæm­um upp­lýs­ing­um eða gegna trúnaðar­störf­um.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK