Verja 1 milljarði í markaðssetningu Collab

Andri Þór Guðmundsson forstjóri Ölgerðarinnar.
Andri Þór Guðmundsson forstjóri Ölgerðarinnar.

Ölgerðin hef­ur ákveðið að verja 1 millj­arða króna í markaðssetn­ingu á Collab. Þetta kem­ur fram í hlaðvarpsþætt­in­um Hlut­hafa­spjallið á Brot­kast.is í um­sjón Sig­urðar Más Jóns­son­ar og Jóns G. Hauks­son­ar en Andri Þór Guðmunds­son for­stjóri Ölgerðar­inn­ar var þar gest­ur.

„Við sett­um 300 millj­ón­ir í þetta á síðasta ári og ætl­um að fjár­festa fyr­ir annað eins á þessu ári, eða fyr­ir um 350 millj­ón­ir. Og svo aft­ur á næsta ári. Þannig að þetta dreif­ist á þrjú ár,“ seg­ir Andri.

Hann bæt­ir við að Collab sé verðmæt­asta vörumerkið á drykkja­vörumarkaðnum á Íslandi og komið upp fyr­ir Kristal, Pepsí og Coca Cola.

Andri Þór bæt­ir við að fyr­ir­tækið sé í slíku sókn­ar­færi í Norður-Þýskalandi að það væri allt að því galið að láta ekki á það reyna. „Tæki­færið hróp­ar á okk­ur,“ seg­ir Andri. 

Drykk­ur­inn fæst þegar í 590 versl­un­um í Dan­mörku og fer á næstu vik­um í um 1.500 versl­an­ir í Þýskalandi. Þá horf­ir fyr­ir­tækið sömu­leiðis til Aust­ur­rík­is og þar hafa 1.900 versl­an­ir samþykkt að taka Collab-drykk­inn inn.

„En þetta er mik­il áskor­un og björn­inn er ekki unn­inn þótt við séum komn­ir í hill­urn­ar úti - þá tek­ur í raun vinn­an við að búa til eft­ir­spurn­ina og ná söl­unni í gang. Þannig að þessu fylg­ir auðvitað veru­leg áhætta - en við trú­um mjög á þetta. Við höf­um gert ít­ar­leg­ar markaðsrann­sókn­ir og vit­um að Þjóðverj­um lík­ar bragðið af drykkn­um og okk­ar er að fá þá til að kaupa hann,“ seg­ir Andri Þór í viðtal­inu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK