Sahara og Disko í samstarf

Sigurður Svansson, framkvæmdastjóri Sahara, Gunnar Kolbeinsson, meðstofnandi Diskó og Jón …
Sigurður Svansson, framkvæmdastjóri Sahara, Gunnar Kolbeinsson, meðstofnandi Diskó og Jón Gísli Ström, markaðsstjóri og Partner hjá Sahara. Ljósmynd/Aðsend

Aug­lýs­inga­stof­an Sa­hara og Diskó hafa skrifað und­ir sam­starfs­samn­ing sem fel­ur í sér að Sa­hara muni styðja við sölu til nýrra viðskipta­vina, inn­leiðingu og ráðgjöf til fyr­ir­tækja sem hafa áhuga á að nýta sér tæki­færi sem fel­ast í þjón­ustu­fram­boði Diskó á Íslandi.

Fram kem­ur í til­kynn­ingu að Diskó sé SMS-lausn sem geri fyr­ir­tækj­um kleift að safna viðskipta­vin­um í vild­ar­klúbba og senda þeim SMS-til­kynn­ing­ar, t.d. með því að láta vita af af­slátt­ar­dög­um eða nýj­um til­boðum Þá geta fyr­ir­tæki einnig tengt Diskó við sölu­kerf­in sín, eins og Shopify, til að senda viðskipta­vin­um sjálf­virk SMS. 

Kær­komið sam­starf

„Diskó byrjaði sem mjög sak­laus hug­mynd en okk­ur fannst fyr­ir­tæki oft eiga í mikl­um vand­ræðum með að ná til bestu viðskipta­vina sinna á hag­kvæm­an og mark­viss­an hátt hérna heima á Íslandi. Tölvu­póst­ar og SMS eru í eðli sínu ólík­ar sam­skipta­leiðir en við trú­um því að öll fyr­ir­tæki ættu að nýta sér báða miðla til að fá sem mest út úr sín­um her­ferðum. Þegar Sa­hara hafði sam­band með hug­mynd að sam­starfi kom enn bet­ur í ljós hve mik­il þörf var fyr­ir lausn eins og þessa. Sam­starfið við Sa­hara er kær­komið en með því get­um við ein­beitt okk­ur að því að þróa Diskó áfram til að það nýt­ist fyr­ir­tækj­um sem best,“ seg­ir Gunn­ar Kol­beins­son, meðstofn­andi Diskó í til­kynn­ing­unni. 

Sig­urður Svans­son, fram­kvæmda­stjóri Sa­hara, seg­ir fyr­ir­tækið hafi verið að skoða leiðir til að styrkja þjón­ustu­fram­boð sam­hliða póstlista­markaðssetn­ingu og leikja­væðingu her­ferða. „Eft­ir að hafa kynnt okk­ur Diskó og þá lausn sem þau bjóða upp á, sáum við að þarna væru gríðarleg tæki­færi fyr­ir ís­lensk fyr­ir­tæki sem þau geta nýtt sér á ein­fald­an og skil­virk­an hátt og erum við full til­hlökk­un­ar að byrja að inn­leiða Diskó til okk­ar viðskipta­vina.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK