Afkoma jákvæð en útgjöld aukast

Afkoma hins opinbera hefur ekki verið jákvæð síðan árið 2018.
Afkoma hins opinbera hefur ekki verið jákvæð síðan árið 2018. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Af­koma hins op­in­bera var já­kvæð nú á fyrsta árs­fjórðungi þess árs sam­kvæmt fyrsta mati byggðu á fyr­ir­liggj­andi gögn­um. 

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Hag­stof­unni.

Áætlað er að af­kom­an hafi verið já­kvæð um 4,6 millj­arða króna eða það sem nem­ur 0,4% af vergri lands­fram­leiðslu. Til sam­an­b­urðar var af­koma hins op­in­bera áætluð nei­kvæð um 4,3 millj­arða á sein­asta ári en þær töl­ur byggja enn á bráðabirgðagögn­um og munu taka breyt­ing­um þegar upp­gjör ligg­ur fyr­ir.

Af­koma hins op­in­bera hef­ur ekki verið já­kvæð frá því árið 2018.

Aukn­ar skatt­tekj­ur

Áætlað er að tekj­ur hins op­in­bera hafi auk­ist um 9,3% frá fyrsta árs­fjórðungi 2024. Vega þar þyngst aukn­ar tekj­ur vegna skatta á tekj­ur og hagnað ásamt aukn­um tekj­um vegna skatta á vör­ur og þjón­ustu.

Útgjöld rík­is­ins hafa einnig auk­ist um 7,4% á þessu sama tíma­bili. Hér vega þyngst ann­ars veg­ar launa­kostnaður sem jókst um 8,2% og út­gjöld vegna kaupa á vöru og þjón­ustu sem juk­ust um 9%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK