Laxeldi er í raun og veru hátæknigeiri

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Lax­eldi og starf­semi Kald­vík­ur var til umræðu í viðskipta­hluta Dag­mála. Gest­ur að þessu sinni er Ró­bert Ró­berts­son fjár­mála­stjóri Kald­vík­ur.

    Spurður hvaða ráðstaf­an­ir Kald­vík geri til að koma í veg fyr­ir slysaslepp­ing­ar byrj­ar Ró­bert á að segja að slysaslepp­ing­ar séu mjög al­var­legt mál.

    „Þetta eru ým­ist mann­leg mis­tök eða eitt­hvað í ytra um­hverf­inu. Þannig að með inn­leiðingu þeirra ferla sem við höf­um inn­leitt og notk­un á þess­ari tækni sem við erum að not­ast við, þá vilj­um við meina að við get­um lág­markað þessa áhættu,“ seg­ir Ró­bert og bæt­ir við að Kald­vík not­ist við ró­bóta.

    „Lax­eldi er í raun og veru al­gjör há­tækni­geiri og við höf­um verið að reyna að nýta tækn­ina og inn­leiða ferla. Við erum með ró­bóta sem fylgj­ast með að allt sé í lagi hjá okk­ur,“ seg­ir Ró­bert og bæt­ir við að slys hafi gíf­ur­leg áhrif á orðspor fé­lag­anna.

    „Fyr­ir utan það að hafa gríðarlega slæm áhrif á orðspor fé­lag­anna þá er þetta nátt­úru­lega tjón fyr­ir okk­ur. Ef við horf­um á fram­leiðsluna hjá okk­ur, þá erum við með fjór­tán kvía­svæði og í hverju kvía­svæði eru á bil­inu tíu til sex­tán kví­ar. Og ef við tök­um til dæm­is minnsta kvía­svæðið okk­ar, þá eru þar tíu kví­ar og í einni kví eru hundrað og fimm­tíu þúsund stykki,“ seg­ir Ró­bert og seg­ir að það sé um ein og hálf millj­ón fiska á einu kvía­svæði.

    „Ef við náum að fram­leiða fisk­inn upp í fimm kíló, þá eru þetta sjö þúsund og fimm hundruð tonn. Og tekj­urn­ar og verðmæt­in sem við erum þar með þarf að reyna að verja með því að gera hlut­ina rétt og þau geta hlaupið á bil­inu sjö til níu millj­örðum ís­lenskra króna á hverju þessu litla kvía­safni, þessu minnsta kvía­svæði okk­ar,“ bæt­ir hann við.

    Áskrif­end­ur Morg­un­blaðsins geta horft á þátt­inn í heild sinni hér:

    Róbert Róbertsson fjármálastjóri Kaldvíkur var gestur Dagmála.
    Ró­bert Ró­berts­son fjár­mála­stjóri Kald­vík­ur var gest­ur Dag­mála. mbl.is/​Hall­ur Már
    Þessi grein birt­ist
    í Morg­un­blaðinu
    Áskrif­end­ur:
    Þessi grein birt­ist
    í Morg­un­blaðinu
    Áskrif­end­ur:
    Fleira áhugavert
      ISK
      USD
      EUR
      GBP
      CAD
      DKK
      NOK
      SEK
    Fleira áhugavert
      ISK
      USD
      EUR
      GBP
      CAD
      DKK
      NOK
      SEK