Karen Ósk Gylfadóttir framkvæmdastjóri Lyfju segir sýn sína vera að fyrirtækið verði í leiðandi hlutverki þegar kemur að heilbrigðisþjónustu, bæði við að meðhöndla sjúkdóma og kvilla en einnig til að fyrirbyggja þá.
Hún tók við sem framkvæmdastjóri Lyfju haustið 2024 eftir að hafa leitt markaðs- og vörusvið og stafrænar lausnir fyrirtækisins frá árinu 2021. Þar áður sinnti hún lykilstörfum hjá Nova og Íslandsbanka. Hún segir þessar ábyrgðarstöður hafa kennt sér mikilvægi markvissrar stefnu, aðgreiningu á markaði og ekki síst að hlusta á viðskiptavininn.
„Það sem heillaði mig fyrst og fremst við Lyfju var að fyrirtækið sinnir lykilhlutverki í heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Við erum ekki bara að afhenda lyf heldur líka að styðja fólk við að lifa heilbrigðara lífi,“ segir hún ákveðin. Undir hennar forystu einblínir Lyfja á að vera fyrirbyggjandi og áhersla er lögð á heilsueflingu og ráðgjöf til viðskiptavina. Hún nefnir sem dæmi að fólk vilji í dag fá upplýsingar og ráðgjöf um sína heilsu óháð núverandi sjúkdómum eða kvillum og að apótekin hafi tækifæri til að geta sinnt fyrirbyggjandi hlutverki. Lyfja býður til að mynda upp á heilsufarsmælingu og hjúkrunarþjónustu í stærstu verslunum sínum.
„Við starfrækjum 45 verslanir um allt land með sérfræðingum og getum virkilega haft áhrif, ekki bara til að meðhöndla sjúkdóma heldur til að styðja við heilsu þjóðarinnar,“ segir hún. Vegferð Lyfju byggir á því að apótekin eru í dag oftar en ekki fyrsta stopp á heilbrigðisferðalagi fólks. „Við viljum lengja líf en einnig auka lífsgæði.“
Lyfja hefur tekið ýmis skref í þá átt, til að mynda í vöruúrvali. Gosdrykkir og nammi hvarf úr hillum Lyfju sem var ákvörðun sem vakti athygli. „Fólk spurði: Er þetta nauðsynlegt? En ef við ætlum að taka vegferðina okkar og heilsueflingu alvarlega þá þurfum við líka að vera samkvæm sjálfum okkur,“ segir Karen. Þá hafi vottunin Hrein vara í Lyfju og samvinna við fjölbreyttan hóp heilbrigðisstarfsfólks verið sett í forgang ásamt áherslu á vöruflokka sem stuðla að vellíðan svo sem hreinar húðvörur og gæðafæðubótarefni.
Tækninýjungar og stafrænar lausnir hafa líka verið í forgrunni. Lyfjuappið, sem áður var fyrst og fremst einföld leið til að panta lyf, hefur nú verið þróað áfram með það að markmiði að bjóða upp á persónusniðna heilsuþjónustu. „Við settum inn fleiri vöruflokka, endurhönnuðum upplifunina og nú erum við með eitt notendavænasta heilsuappið á markaðnum,“ segir Karen en appið hefur nú þegar hlotið verðlaun sem app ársins hjá SVEF. Í dag sendir Lyfja heim á stærstu þéttbýlissvæðum að jafnaði innan klukkustundar frá pöntun og ánægja viðskiptavina hefur aldrei verið meiri.
Viðtalið í heild má lesa í ViðskiptaMogganum.
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.