Hlutabréfaverð Boeing hafði lækkað um 5% þegar kauphallir í New York-borg lokuðu í gær. Þetta gerðist í kjölfar flugslyssins sem varð í gærmorgun þegar Boeing 787 Dreamliner-flugvél hrapaði við Ahmedabad-flugvöllinn á Indlandi. Flugvélar af þessari gerð eru meginstoð í alþjóðlegu flugi.
Fyrirtækið hefur ekki átt sjö dagana sæla en á síðasta ári tapaði það milljarði dollara í hverjum mánuði þar sem það glímdi við gæðaeftirlitsvandamál, verkfall sem stóð í sjö vikur og þurfti að greiða bætur fyrir ýmis óhöpp. Þá hefur fyrirtækið lent í fjölda lagalegra deilna vegna flugslysa í Indónesíu og Eþíópíu árin 2018 og 2019. Þá hafa tvær flugvélar af gerðinni Boeing 737 Max farist vegna galla í vélunum. Í kjölfar slysanna voru vélar af þeirri gerð kyrrsettar í 18 mánuði.
Ekki liggur fyrir hvað olli flugslysinu á Indlandi í gær. Framkvæmdastjóri Boeing, Kelly Ortberg, sagði að Boeing myndi styðja rannsókn á slysinu undir forystu indversku flugslysarannsóknarstofnunarinnar.
Á síðasta ári brotnaði hleri af Boeing vél eftir flugtak vegna þess að það vantaði fjóra skrúfbolta, sem áttu að halda hurðinni á sínum stað. Flugfélagið Boeing borgaði Alaska Airlines 160 milljónir dollara í skaðabætur.
Árið 2019 greindi breska ríkisútvarpið frá því að verkafólk undir álagi á framleiðslulínu Boeing hafi vísvitandi sett hluta sem standast ekki kröfur í flugvélar. Þá greindi verkfræðingurinn Sam Salehpour bandarískum stjórnmálamönnum frá því hvernig hann var áreittur og honum hótað þegar hann lýsti yfir áhyggjum sínum yfir öryggi Boeing flugvéla.
Kelly Ortberg var kominn á eftirlaun þegar hann var kallaður til baka í stöðu forstjóra fyrir ári síðan. Honum er ætlað að endurlífga fyrirtækið og hefur lofað umbótum á öryggi Boeing og sagðist nýlega viss um að flugrisinn myndi brátt ná arðsemi á ný
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.