Nýsköpunarfyrirtækið HILI hefur tekið upp nýtt nafn og vörumerki, Aparta, í aðdraganda mikillar stækkunar á evrópskum mörkuðum. Fyrirtækið, sem þegar starfar í Noregi, Svíþjóð, Danmörku og á Íslandi, hyggst hefja starfsemi á fleiri mörkuðum á árunum 2025 og 2026.
„Við höfum kynnt nýja ímynd og nýtt vörumerki sem endurspeglar betur hver við erum og framtíðina sem við erum að byggja. Aparta endurspeglar kjarnahugmynd okkar um að fjárfesta í hlut af heimilinu þínu sem langtíma faglegur meðeigandi,“ segir Sigurður Viðarsson, framkvæmdastjóri Aparta á Íslandi, í tilkynningu Aparta.
Aparta (áður HILI) er norskur sameignarvettvangur og sá fyrsti sinnar tegundar í Evrópu. Aparta hefur það að markmiði að breyta aðgengi að fasteignafjárfestingum með sveigjanlegum og stafrænum lausnum.
Aparta býður upp á nýtt form fjárfestinga í íbúðarhúsnæði þar sem fasteignaeigendur geta losað fjármagn úr eignum sínum án þess að selja eða auka skuldir. Fyrirtækið verður meðeigandi að eigninni og eigandinn heldur áfram að búa í henni og nota hana að fullu.
„Við erum að byggja upp innviði fyrir fjárfestingar í heimilum í Evrópu. Nýja vörumerkið styður metnað okkar: að gera sameign að almennum, áreiðanlegum og aðgengilegum kosti fyrir bæði fasteignaeigendur og fjárfesta,“ segir Sigurður, sem samkvæmt tilkynningunni hefur víðtæka reynslu úr fjármálageiranum, meðal annars sem forstjóri TM og aðstoðarforstjóri Kviku banka.
Aparta hefur þegar opnað vefsíðu þar sem bæði fasteignaeigendur og fjárfestar geta kynnt sér tækifæri á vettvanginum. Fyrirtækið hefur einnig gert samstarfssamning við Stefni, stærsta sjóðastýringarfyrirtæki landsins, um stofnun fyrsta búsetusameignarsjóðs Íslands sem byggir á lausn Aparta. Svipað samstarf er í burðarliðnum víðar á Norðurlöndunum og í Evrópu.