Kvika hafnar samrunaviðræðum við Arion banka og Íslandsbanka 

Ármann Þorvaldsson forstjóri Kviku.
Ármann Þorvaldsson forstjóri Kviku. Morgunblaðið/Eggert

Stjórn Kviku banka hafn­ar er­ind­um Ari­on banka og Íslands­banka um mögu­leg­ar samrunaviðræður, að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu frá bank­an­um í dag.

Er­ind­in bár­ust þann 27. og 28. maí síðastliðinn, en eft­ir mat á þeim tel­ur stjórn Kviku að til­boð bank­anna end­ur­spegli ekki virði Kviku. Á þeim grund­velli séu ekki for­send­ur til að hefja samrunaviðræður að svo stöddu.

Í til­kynn­ing­unni kem­ur þó fram að stjórn Kviku telji að tæki­færi og verðmæti geti fal­ist í sam­ein­ingu fé­laga, bæði fyr­ir hlut­hafa og viðskipta­vini. Ef Ari­on banki eða Íslands­banki eru til­bún­ir að end­ur­skoða for­send­ur er­ind­anna, er stjórn Kviku reiðubú­in að end­ur­meta af­stöðu sína.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK