Fréttin birtist fyrst í Morgunblaðinu 16. júní.
Christine Lagarde, seðlabankastjóri Evrópu, segir varhugavert að efnahagsleg verndarstefna sé farin að skjóta rótum í alþjóðahagkerfinu. Í viðtali sem kínverski ríkisfjölmiðillinn Xinhua birti á laugardag sagði Lagarde jafnframt að nýlegar tollabreytingar Donalds Trumps hefðu skapað óvissu, haft kælandi áhrif á fjárfestingar og stefnt hagvexti á heimsvísu í voða.
Sagði Lagarde að allir þyrftu að fylgja sömu reglum og halda samskiptaleiðum opnum, og að hvers kyns inngrip, eða hótanir um að beita inngripum, drægju úr fjárfestingu. „Útkoman er að allar stofnanir hafa lækkað hagvaxtarspár sínar fyrir alþjóðahagkerfið,“ sagði hún og bætti við að efnahagsleg óvissa væri jafnt fjárfestum sem vinnuveitendum erfið viðureignar. „Það sama á við um seðlabankana. Mikil óvissa gerir okkur lífið leitt.“
Lagarde benti einnig á að þegar óvissa skapaðist væru fyrirtæki líkleg til að endurskipuleggja aðfangakeðjur sínar, en það væri til þess fallið að gera atvinnulífið viðkvæmara fyrir sveiflum og áföllum. Útkoman gæti verið hægari vöxtur en ella, og aukinn verðbólguþrýstingur.
Í viðtalinu sagði Lagarde jafnframt að verðbólga í Evrópu væri óðara að nálgast 2% verðbólgumarkmið SBE. Hún bætti þó við að erfitt myndi reynast að viðhalda stöðugu verðlagi ef fjárhagslegan stöðugleika vantaði.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.