c

Pistlar:

29. janúar 2025 kl. 12:23

Sigurður Már Jónsson (sigurdurmar.blog.is)

Grænlenskt gull í íslenskri kauphöll

Gull er merkilegur málmur, nýtist vissulega til margvíslegra hluta tengt rafleiðni en er fyrst og fremst ávísun á verðmæti. Sannarlega er gull fallegt og orðatiltæki gull og gersemar rammar betur en annað inn sókn eftir verðmætum og glysi. Hægt er að framleiða demanta með iðnaðarferlum en gullið verður aðeins sótt í skaut náttúrunnar. Gull er frumefni og fágætt en um 1.200 tonn af þessum eðalmálmi eru framleidd á ári en eftirspurnin nemur um 1.400 til 1.500 tonnum. Vissulega getur verð á gulli sveiflast en það hefur sýnt sig vera traust leið til að varðveita verðmæti í svikulum heimi verðbólgu.

Rifja má upp að þegar Þjóðverjar, undir stjórn nasista, sóttust eftir heimsyfirráðum var gullforði viðkomandi ríkis það sem þeir sóttust strax eftir. Fræg er sagan af því þegar Hákon sjöundi, konungur Noregs, flúði undan innrásarher Þjóðverja árið 1940 með gullforða landsins í farteskinu. Óvíst er hvernig farið hefði ef nasistar hefðu náð kónginum og gullinu. En hann komst til London og Norðmenn gátu nýtt gullið til að reka útlagastjórn sína og kaupa nokkur herskip. Ekki fór eins vel hjá Pólverjum sem misstu sinn gullforða og voru upp á Englendinga komnir með að fjármagna útlagastjórn sína.amaroq

Gullvinnsla hafin hjá Amaraoq

Víkur þá sögunni að fyrirtækinu Amaroq Minerals Ltd. (áður AEX Gold Inc.) sem íslenskir fjárfestar hafa sótt í undanfarið ár og uppskorið ríkulega ávöxtun af. Lengst af hefur félagið verið að byggja sig upp og afla námuréttinda en það náði svo nýverið þeim áfanga að byrja að vinna fyrsta gullið úr Nalunaq-námunni og hefur gefið út að von sé á nýju auðlindamati á fyrsta ársfjórðungi sem staðfestir betur magn og gæði gulls í námunni. Um leið er félagið byrjað að bora í annarri námu sem heitir Nanoq og er 20 km frá hinni námunni. Því til viðbótar hefur félagið aðgang að töluverðu landsvæði til rannsókna á Grænlandi.

Það var fyrir tíu árum sem hópur Íslendinga undir forystu ungs jarðfræðings, Elds Ólafssonar, stofnaði félag um kaup á gullnámu á Grænlandi en félagið sem átti hana var gjaldþrota. Hér er um að ræða Nalunaq-námuna á Suður-Grænlandi en til að komast þangað er flogið til Narsarsuaq. Þaðan þarf að taka þyrlu á námasvæðið. Þetta mun vera stærsta einkafjárfestingin síðustu ár á Grænlandi.amaroq2

Með fimm verkefni í gangi

Amaraoq starfrækir fimm verkefni núna. Á svæðinu við fyrstu gullnámuna er ný gullkvörn risin og gullvinnsla hafin. Merkur áfangi náðist nýlega þegar fyrstu gullstangirnar voru steyptar. Þarna í kringum vinnsluna eru um 80 til 90 manns að störfum í dag en á sumrin, á um sex mánaða tímabili, er verið að bora á fjórum til fimm svæðum og starfsmenn í heildina um 120. Þeir verða að öllum líkindum um 200 þegar allt verður komið í gang en hvert svæði í vinnslu þarf um 40 til 50 manns.

Viðfangsefni Amarop í Nalunaq-námunni felst í að elta gullæð sem Eldur sagði við Kristján Má Unnarsson, fréttamann Stöðvar 2, að gangi upp og niður fjöllin þar sem náma félagsins er. Göngin eru núna 20 km að lengd en vinnslan fer þannig fram að það er sprengt, mokað og sett á trukka og svo er það berg sem þeir vilja vinna áfram keyrt að vinnslubandinu og gullkvörninni sem nú er búið að reisa eins og áður sagði. Þar er bergið molað og hreinsað í stórum vatnstromlum og þá fellur gullið út.

Gefur náman 18 milljarða?

Eldur sagði að hann næði 400 til 500 únsum af gulli úr einni bergfyllu sem er 10 sinnum 10 metrar þar sem æðin liggur og er um 700 tonn að þyngd. Miðað við að 450 únsur komi úr því fást um 150 milljónir íslenskra króna. Væntingar félagsins eru að fá 3 til 4 gullstangir þriðja hvern dag.

Miðað við fulla framleiðslugetu á að vera hægt að taka um 300 tonn af gullbergi út úr fjallinu. Er þá miðað við að þessi náma gefi 130 milljónir Bandaríkjadala á ári í tekjur eða sem svarar 18 milljörðum króna. Það jafngildir því að náman gefi um 50 milljónir króna á dag þegar unnið er í henni.

Þá hefur verið borað á fjórum öðrum stöðum, meðal annars á kopar/nikel svæði en það eru helstu málmarnir, ásamt gullinu, sem Amaraoq er að leita að.

Þetta er erfitt rekstrarumhverfi, engir vegir og samgöngur bara á sjó eða með þyrlu. Einungis það að flytja einstakling til og frá Grænlandi kostar félagið um 2000 dollara í hvert skipti.
Amaroq er með dreift eignarhald en er stofnað á Íslandi og af Íslendingum undir forystu Elds. Í dag koma alþjóðlegir fjárfestar að félaginu. Stærsti hluti fjármagnsins kom erlendis frá en í seinni tíð hafa íslenskir verðbréfasjóðir, sjóðsstýringarfyrirtæki og þar á meðal lífeyrissjóðir komið inn í hluthafahópinn. Íslenskt eignarhald er á bilinu 30 til 40% sagði Eldur í viðtali við Kristján Má Unnarsson, fréttamann á Stöð 2, sem var boðið með í ferð til að skoða aðstöðuna.amaroq3

Grænland í miðju athyglinnar

Sú mikla athygli sem Grænland hefur fengið að undanförnu hefur ekki farið framhjá neinum. Miklar væntingar eru meðal heimamanna um tekjur af námagreftri og væntingar eru um að fágætismálma sé þar að finna. Allt þetta getur sett Amaraoq í eftirsóknarverða aðstöðu.

Gullvinnsla er vandasöm og ekki öllum ríkum til blessunar en hér í pistli hefur áður verið sagt frá gullvinnsluvandræðum Ganabúa. Allir sem vinna gull glíma við vandamál er tengist vinnslunni sjálfri. Meðal annars eru hefðbundnar vinnsluaðferðir mjög mengandi vegna mikillar vatnsnotkunar með mishættulegum kemískum efnum. Einnig vegna þess að við gröft og mölun bergs losna þungmálmar út í umhverfið. Ekki liggur fyrir hvernig Amaroq leysir þessi vandamál en ætla má þó að yfirvöld setji félaginu margvísleg skilyrði og fylgist með hvernig staðið er við það.