Allir Íslendingar þekkja til breskra sakamálaþátta enda má segja að þeir séu samofnir sögu Ríkisútvarpsins sem hefur verið duglegt að færa okkur þennan heim sem byggir á sterkri hefð í bókmenntum Breta og felur í sér velheppnaðri aðlögun lista og afþreyingar. Margir breskir lögregluþjónar hafa orðið íslenskir heimilisvinir og um leið hafa áhorfendur notið þess að rýna inn í breskt samfélag sem lengst af hefur stýrst af sérvisku og hefðum. Það er hins vegar að breytast hratt eins og fréttir frá Bretlandi sýna okkur.
Nýlega sá pistlaskrifari myndina The Buckingham Murders á Netflix en það er indversk glæpamynd frá 2023 í leikstjórn Hansal Mehta og með Kareena Kapoor Khan í aðalhlutverki þar sem hún leikur syrgjandi bresk-indverskan leynilögreglumann sem fær úthlutað máli er varðar myrt barn í Buckinghamshire. Þeir sem að myndinni koma eru eins indverskir og getur orðið en handritið er skrifað af Aseem Arrora, Raghav Raj Kakker og Kashyap Kapoor og framleitt af Kareena Kapoor Khan, Shobha Kapoor og Ekta Kapoor. Myndin var heimsfrumsýnd á 67. BFI kvikmyndahátíðinni í London 14. október 2023. Hún kom í kvikmyndahús í september síðastliðnum og fékk almennt jákvæða dóma.
High Wycombe á hindí
Myndin er á ensku og hindí en um 70 til 80% samræðna eru á ensku. Þeir Bretar sem birtast í myndinni eru nánast aukaleikarar. Eins og áður sagði fjallar sagan rannsóknarlögregluþjón, leikinn af Kareena Kapoor Khan, sem gengur á kvíðalyfjum eftir að hafa misst barn sitt af völdum skotárásar geðveiks múslima. Leikstjórn Hansals er í klassískum lögreglumyndastíl en það er þó hinn samfélagslegi bakgrunnur sem mesta athygli vekur.
Það er því ekki endilega myndin sjálf sem vekur forvitni heldur söguþráðurinn og bakgrunnurinn. Hin breytta veröld sem birtist okkur í þessari indversku Bollywood-mynd sem tekin er upp í heldur dapurlegu umhverfi High Wycombe í Buckinghamshire en bærinn var einkum frægur fyrir húsgagnagerð á 19. öld. Þetta er glæpasaga með sterkri þjóðfélagsádeilu í algerlega breyttu þjóðfélagi. Myndin er, eins og áður sagði, jöfnum höndum á ensku og hindí og samræðurnar eru á blöndu sem gæti kallast enskuskotið hindí.
Glæpaheimur Morse og Dalgleish horfinn
Hvaða heimur er þetta eiginlega, spyr maður sig? Hvernig getur bresk sviðsmynd sýnt algerlega breytta samfélagsskipan? Þó maður telji sig hafa ýmsar staðreyndir á hreinu um breytingarnar í ensku samfélagi þá slær myndin hinn íslenska áhorfanda samt út af laginu. Sérstaklega þar sem fyrr um kvöldið hafði ég horft á þátt í Ríkissjónvarpinu um rannsóknarlögreglumanninn og ljóðskáldið Adam Dalgliesh þar sem hann rannsakar sakamál um miðjan áttunda áratug síðustu aldar. Þættirnir eru byggðir á skáldsögum eftir P. D. James (1920-2014). Sögur hennar um Dalgliesh voru gerðar að röð sjónvarpsmynda sem sýndar voru á ITV á 9. og 10. áratug 20. aldar. Hinn fágaði Adam Dalgliesh er einn í langri röð slíkra leynilögreglumanna og fljótlega kemur annar listunnandi úr röðum lögreglumanna upp í hugann eða rannsóknarlögreglumaðurinn Morse. Það var einnig feikivinsæl bresk sjónvarpsþáttaröð sem byggð var á skáldsögum eftir Colin Dexter (1930-2017). Lengst af var hlutverk Morse lögreglustjóra í höndum John Thaw með aukasjálfinu Kevin Whately sem Lewis liðþjálfa en hann fékk svo eigin þáttaröð síðar. Þættirnir um Morse voru framleiddir á tímabilinu 1987 til 2000 og hafa verið lífgaðir við með nýjum handritshöfundum og leikurum. Bæði Morse og Dalgleish eru millistéttarmenn sem fást við glæpi sem gerast í stéttskiptu en eintóna samfélagi. Oftar en ekki eru það einstaklingar úr yfirstéttinni sem eru gerendur og í yngri útgáfunum eru þeir gjarnan sýndir sem siðspiltir eða jafnvel fullkomlega siðblindir einstaklingar.
Ný orsök og eðli glæpa
The Buckingham Murders gerist í allt öðru Englandi. Húsin og landslagið eru eins en fólkið er annað, það samanstendur af innflytjendum af fyrstu eða annarri kynslóð. Þetta fólk skapar breska samfélagið í dag og flytur með sér allt önnur viðfangsefni og vandamál. Orsök og eðli glæpanna koma úr rótum trúar og samfélagsskipanar þessara nýju íbúa. Gamla Bretland hefur erft ný þjóðfélagsleg vandamál sem þessir fyrrum nýlendubúar hafa tekið með sér, svo sem átök milli hindúa, múslíma og síka. Lögreglustjórinn telur sér nú skylt að hringja í ímaninn, trúarleiðtoga moskunnar í bænum, til þess að upplýsa hann um þróun mála og til að reyna að koma í veg fyrir að allt fari úr böndunum.
Nú er svo komið að öll mál hafa rasískan undirtón sem gera alla óörugga enda eru óeirðir sem rekja má til kynþátta nú eitt af meginviðfangsefnum bresku lögreglunnar. Upp úr sauð á síðasta ári í kjölfar hnífaárásarinnar í Southport en eftirmál hennar sýndu glögglega það sem myndin um morðin í Buckingham varpar ljósi á: að breskt samfélag er klofið eftir nýjum átakalínum og engin leið er að sjá hvernig úr því leysist. Það er kannski stærra mál en þeir Morse og Dalgleish gætu leyst í sameiningu.