Það er jafn átakanlegt og það er lærdómsríkt að heimsækja úkraínsku borgina Lvív á stríðstímum. Þegar Morgunblaðið leit þar við á dögunum var verið að aka föllnum hermanni síðasta spölinn. Fóru bílstjórar þá út úr bílum sínum og fóru niður á hnén, hinum látna til heiðurs. Sorgin er mikil.