Fréttir af snemmgengnum löxum halda áfram að berast. Varla var búið að setja niður laxateljarann í Langá þegar 72 sentímetra hrygna skaust í gegn. Þykkur og fallegur vorlax. Árnefnd í Sandá í Þistilfirði er að störfum og fullyrða nefndarmenn að lax sé mættur þar.