Íbúi í Grafarvogi, Hrafnhildur Björnsdóttir, varð vitni að því þegar háhyrningur synti í land við golfvöllinn Korpu í Grafarvogi í gær. Náði hún myndbandi af því þegar hvalurinn kom að landi. Hafði hann þá verið að svamla umhverfis Geldinganes í nokkurn tíma.