Palazzo Maffei, listasafn á Ítalíu leitar nú tveggja ferðamanna sem brutu „stól van Gogh“ á sýningu safnsins. Atvikið náðist á upptöku eftirlitsmyndavéla. Þar má sjá hvar miðaldra par þykist sitja í stólnum sem var einn af sýningarmunum. Konan þóttist aðeins sitja í stólnum en eiginmaður hennar tyllti sér í stólinn með þeim afleiðingum að hann brotnaði undan manninum. Parið flúði vettvanginn í kjölfarið.